Buðu 47,8 milljarða í Icelandic 2. febrúar 2011 00:01 Gagnrýni Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands, segir slit á viðræðum við Triton ekki tengjast gagnrýni annarra áhugasamra kaupenda á söluferlið.Fréttablaðið/GVA
Viðskipti Samningaviðræðum Framtakssjóðs Íslands og fjárfestingasjóðsins Triton um kaup þess síðarnefnda á erlendri starfsemi Icelandic Group hefur verið hætt. Triton bauð 300 milljónir evra í Icelandic eftir ítarlega skoðun, jafnvirði 47,8 milljarða króna. „Það náðist ekki saman um verð, tilboð sem Framtakssjóðnum barst frá Triton var ekki ásættanlegt,“ segir Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri sjóðsins. Carl-Evald Bakke-Jacobsen, meðeigandi í Triton, segir viðræðuslitin hafa komið verulega á óvart. „Við buðum verulega háa upphæð í Icelandic, mun hærra en aðrir eru tilbúnir að borga.“ Hann segir Triton hafa viljað nota Icelandic Group sem grunn að fisksölurisa á heimsvísu og ætlunin hafi verið að eyða háum fjárhæðum í að stækka fyrirtækið. Viðræður Framtakssjóðsins við Triton voru harðlega gagnrýndar af öðrum áhugasömum kaupendum, sem töldu söluferlið fjarri því að vera opið eða gagnsætt. Finnbogi segir að viðræðuslitin tengist ekki þeim gagnrýnisröddum. Bakke-Jacobsen er ekki sannfærður. Hann segir að þar sem tilboð Triton hafi verið mjög hátt sé erfitt að sjá ákvörðun um viðræðuslit sem annað en viðbrögð við þessari gagnrýni. Nú stendur til að setja verksmiðjur Icelandic í Bandaríkjunum og framleiðslustarfsemi í Kína í opið söluferli. Ekki stendur til að selja verksmiðjur í Evrópu, sölukerfi Icelandic um heim allan eða vörumerki félagsins. Bakke-Jacobsen segir það óráð að brjóta fyrirtækið upp. Á þessum markaði þurfi fyrirtæki að vera stór og öflug til að lifa af og skila hagnaði. - bj
Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Sjá meira