Segja nauðsynlegt að greina á milli nýja Spkef og þess gamla 2. febrúar 2011 09:10 Einar Hannesson, sparisjóðsstjóri.
Ný stjórn og nýr sparisjóðsstjóri Spkef hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að nauðynlegt sé að aðgreina á milli aðila þegar fjallað er um lánveitingaákvarðanir Sparisjóðs Keflavíkur. „Þann 22. apríl 2010 var nýr sparisjóður reistur við undir merkjum Spkef sparisjóðs. Rannsókn stendur nú yfir af hálfu Fjármálaeftirlitsins (FME) á gamla Sparisjóði Keflavíkur og sinnir PWC þeirri rannsókn fyrir hönd FME. Stjórn og sparisjóðsstjóri nýja Spkef telja nauðsynlegt að bíða endanlegra niðurstaðna rannsóknar FME til að fá heildarmynd af starfsemi gamla Sparisjóðs Keflavíkur áður en hægt er að fella einhverja dóma byggða á umfjöllun fjölmiðla." Þá segir að allir hlutaðeigandi hljóti þó að telja eðlilegt að slík skoðun fari fram. „Það er mikilvægt í þeirri umræðu sem verið hefur undanfarið í fjölmiðlum að allir þeir aðilar sem til skoðunar eru vegna starfsemi gamla Sparisjóðs Keflavíkur njóti sannmælis og sanngirni. Stjórn hins nýja Spkef sparisjóðs vill taka það fram að hvorki hún né stjórnendur nýja sjóðsins eru beinir þátttakendur í þeirri rannsókn." Hvað varðar málefni nýja Spkef sparisjóðs, sem endurreistur var og einnig hafa verið til umfjöllunar, segir stjórnin: „Þeirri endurreisn miðar vel áfram. Umtalsverð vinna hefur verið lögð í endurskipulagningu á starfsemi sparisjóðsins, á endurútreikningum á íbúðarlánum, stofnfjárlánum, erlendum lánum og endurskipulagningu lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Þá hefur skipulag sjóðsins verið endurskoðað og dregið hefur verið úr kostnaði. Unnið er að því hörðum höndum að stilla upp stofnefnahagsreikning nýs sparisjóðs með það fyrir augum að leiða í ljós endurfjármögnunarþörf hans. Er þá meðtalinn skuldbinding ríkisins vegna innistæðna og mismunur á milli skulda og eigna. Áréttað skal að allar innistæður í sparisjóðum og útibúum þeirra eru að fullu tryggðar, í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þess efnis. Niðurstaða vinnunnar við endurskipulagninguna mun liggja fyrir í lok febrúar."
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Sjá meira