Stækkun verksmiðju Actavis lokið 14. janúar 2011 09:07
Actavis á Íslandi hefur lokið við að stækka lyfjaverksmiðju sína í Hafnarfirði og eykst framleiðslugetan við það úr einum milljarði taflna í einn og hálfan milljarð taflna á ári. Verksmiðjan verður opnuð formlega í dag, 14. janúar kl.10:30, að viðstöddum forseta Íslands, herra Ólafi Ragnari Grímssyni. Í tilkynningu segir að starfsfólki Actavis fjölgaði um 100 í fyrra, þar af 70 vegna stækkunar verksmiðjunnar. Um 700 manns starfa nú hjá Actavis á Íslandi. Unnið er allan sólarhringinn í verksmiðjunni og er hún fullbókuð sjö mánuði fram í tímann; það þýðir að öll framleiðsla næstu sjö mánuðina er þegar seld. Verksmiðjan framleiðir töflur og hylki, en samvinna þróunarmiðstöðvar Actavis í Hafnarfirði og verksmiðjunnar sem nú er að stækka þýðir að hér á landi eru mörg af nýjustu og verðmætustu lyfjum félagsins framleidd og flutt út. Mest er flutt út til Evrópu. Heildarkostnaður við stækkun verksmiðjunnar nemur um 1,2 milljörðum króna. Tæki og tól í verksmiðjunni koma frá Bandaríkjunum og Evrópu, en verktakar við bygginguna eru íslenskir. Þótt byggingin sé mjög sérhæfð, hefur ekki þurft að kaupa sérhæfða ráðgjöf erlendis frá til að sinna verkefninu; sú sérfræðiþekking er til staðar innan Actavis og hjá íslenskum verkfræðistofum. Rík áhersla er lögð á gæðamál og uppfyllir verksmiðjan í Hafnarfirði kröfur um góða framleiðsluhætti í lyfjagerð. Útflutningsverðmæti lyfja sem framleidd voru í verksmiðju Actavis í Hafnarfirði í fyrra, námu um 12 milljörðum króna. Til samanburðar má geta þess að fjárlög 2010 gerðu ráð fyrir tæplega 9 milljörðum króna til reksturs Háskóla Íslands. Lyfjaverksmiðjur Actavis eru alls 14 í 12 löndum. Starfsmenn Actavis samsteypunnar eru um 10.000 í yfir 40 löndum. Heildarvelta samstæðunnar nam um 1.7 milljörðum evra í fyrra.
Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Sjá meira