Viðskipti innlent

Lotna kaupir fiskvinnsluna á Flateyri

Það er fallegt á Flateyri. Mynd úr safni.
Það er fallegt á Flateyri. Mynd úr safni.

Fyrirtækið Lotna ehf. er að leggja lokahönd á kaupsamning á öllum eigum þrotabús Eyrarodda ehf., á Flateyri. Lotna eignast þannig allar fasteignir þrotabúsins, fiskvinnsluna, skrifstofuhúsnæðið og krókaaflamarksbátinn Stjána Ebba ÍS.

Eigendur Lotnu ehf. eru Sigurður Aðalsteinsson og Kristján Krisjánsson skipstjóri en heimildir bb.is herma að Kristján verði ráðinn framkvæmdastjóri Eyrarodda.

Fréttastofa greindi frá því í janúar að Eyraroddi hefði verið úrskurðaður gjaldþrota, en íbúar og sveitarstjórnir á vestfjörðum töldu það mikið reiðarslag fyrir Flateyri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×