Viðskipti innlent

Einarsson Fly fishing kynnir nýja línu af veiðihjólum

Frumkvöðlafyrirtækið Einarsson Fly fishing á Ísafirði mun í apríl kynna nýja línu af veiðihjólum Invictus (latína og stendur fyrir ósigrandi) þar sem byggt er á nýrri bremsutækni sem verið er að fá einkaleyfi fyrir.

Í tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu segir að fyrirtækið hefur um nokkurra missera skeið framleitt hágæða veiðihjól og rekið verslun vestur á Ísafirði. Að baki fyrirtækinu er skýr hugmyndafræði sem gengur út á framúrskarandi gæði og virðingu fyrir náttúrunni, veiðmennskunni og viðskiptavininum. Má í þessu sambandi nefna að 1% af tekjum fyrirtækisins renna til umhverfismála.

Hvað Invictus varðar er hjólið þannig að gír er á milli spólu og bremsukerfis sem jafnar út átakið og lágmarkar þannig rykki og snögg átök. Nýja Invictus hjólið er afrakstur þriggja ára þróunnarvinnu og er niðurstaðan ný og byltingarkennd tækni í bremsukerfi fluguveiðihjóla sem hefur vakið athygli víða um heim. Þessi nýja bremsutækni var hönnuð í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Ísland með styrk frá Tækniþróunarsjóði Rannís.

Öll veiðihjól frá Einarsson eru smíðuð frá grunni á Ísafirði og markmiðið er skýrt - að í gæðum og endingu standist hjólin allan samjöfnuð við þau veiðihjól sem teljast best á markaðnum, að því er segir í tilkynningunni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×