„Ekki hægt að stytta sér leið“ 8. febrúar 2011 05:45 Olli Rehn (til hægri) og Árni Páll Árnason ræddu meðal annars hvernig framkvæmdastjórn ESB getur aðstoðað við afnám gjaldeyrishaftanna.Mynd/ESB
Engin leið er fyrir Ísland að taka upp evruna eða fá stuðning Evrópska seðlabankans við krónuna nema með Evrópusambandsaðild og því að uppfylla skilyrði fyrir upptöku evru, segir Olli Rehn, efnahags- og peningastefnustjóri framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. „Það er ekki hægt að stytta sér leið,“ sagði Rehn á fundi með fjölmiðlafólki eftir fund með Árna Páli Árnasyni, efnahags- og viðskiptaráðherra, í Brussel í gær. „Ísland þarf að ljúka aðildarviðræðunum, samþykkja aðild í þjóðaratkvæðagreiðslu og uppfylla skilyrði fyrir upptöku evrunnar eins og aðrir,“ sagði Rehn. Hann fagnaði því að íslensk stjórnvöld væru að vinna að því takmarki, og bauð tæknilega aðstoð frá framkvæmdastjórn ESB til að ná því markmiði. „Góður árangur íslenskra stjórnvalda í að koma á efnahagslegum stöðugleika hefur náðst, meðal annars með því að setja á gjaldeyrishöft. Frjálst flæði fjármagns er mikilvægt skilyrði fyrir aðild að Evrópusambandinu, og því þarf að afnema höftin,“ sagði Rehn. Árni Páll fagnaði boði Rehns um aðstoð við afnám gjaldeyrishaftanna og undirstrikaði mikilvægi þess að afnema höftin á varfærinn hátt til að viðhalda stöðugleika krónunnar.- bj
Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Sjá meira