Gengi krónunnar hefur veikst gagnvart flestum myntum 15. febrúar 2011 11:58
Þó nokkur veiking hefur orðið á gengi krónunnar það sem af er ári. Nú stendur gengisvísitala krónunnar í 214 stigum en um síðustu áramót stóð vísitalan í 207 stigum. Þessa þróun má rekja til nánast allra undirliggjandi mynta sem þarna koma við sögu, en þar spilar þróun á gengi krónunnar gagnvart evru stærsta hlutverkið. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þannig vegur evran um helming vísitölunnar þegar tekið er tillit til þeirra gjaldmiðla, eins og dönsku krónunnar og litháensku litas, sem eru festir við gengi evru. Nú kostar evran rétt tæpar 159 krónur en um síðustu áramót var hún á rétt rúmar 153 krónur. Jafngildir þetta veikingu krónunnar gagnvart evru upp á tæp 4%. Sá gjaldmiðill sem vigtar næstmest í gengisvísitölu krónunnar, eða tæp 13%, er breska pundið en það hefur sótt þó nokkuð í sig veðrið frá áramótum, þá einna helst í janúarmánuði. Nú kostar pundið um 190 krónur en um síðustu ármót var það á 180 krónur og nemur veiking krónunnar gagnvart pundinu á tímabilinu þar með tæpum 5%. Gagnvart Bandaríkjadollar, sem vigtar rúm 10% í gengisvísitölunni, hefur krónan veikst um rúm 2%. Nú í morgun stóð Bandaríkjadollar í 118 krónum en kostaði um síðustu áramót rúmar 115 krónur. Í raun hefur krónan veikst gagnvart öllum þeim myntum sem hafa áhrif á gengisvísitöluna að tveimur myntum undanskildum, þ.e. gömlu lávaxtamyntunum svissnesku frönkum og japönskum jenum sem vega hvort um sig rétt rúm 2% í gengisvísitölunni. Gagnvart þeirri fyrrnefndu hefur krónan styrkst um tæp 2% en gagnvart þeirri síðarnefndu er gengið nánast óbreytt.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Sjá meira