Viðskiptajöfnuðurinn jákvæður um 200 milljarða 17. febrúar 2011 12:00
Eftir hreinsun á efnahagsreikningi þjóðarinnar, það er taka banka í slitameðferð og Actavis út úr jöfnunni, er viðskiptajöfnuður landsins jákvæður um 200 milljarða kr. á ári. Þetta samsvarar 13% af landsframleiðslu (VLF) Íslands.Greining Arion banka segir frá þessu í Markaðspunktum sínum þar sem fjallað er um ítarlega skýrslu Seðlabankans sem birt var í gær.„Athygli vekur hversu gríðarlega sterk áhrif einstakt fyrirtæki, Actavis, hefur á bæði brúttó og nettó skuldastöðu við útlönd en ekki síður á viðskiptajöfnuð," segir í Markaðspunktunum.„Fyrirtækið skuldar um 70% af VLF og virðast litlar eignir koma þar á móti eða um 20% af VLF. Neikvæðu áhrifin af þessu eina fyrirtæki á hreina skuldastöðu Íslands eru því um 50% af VLF, eða um 775 milljarðar króna. Ef fyrirtækið er tekið út er hrein skuldastaða landsins því neikvæð um 23% af VLF."Þá segir að niðurstaða skýrslunnar gefi einnig til kynna að svigrúm Seðlabankans til gjaldeyriskaupa verði umtalsvert á næstu árum að því gefnu að allur sá gjaldeyrir sem verður til í gegnum væntan viðskiptaafgang skili sér til landsins.„Hafi einhverjir klórað sér í hausnum vegna ríflega 13% styrkingar krónunnar á síðustu mánuðum ársins 2010, þá er nú komin ágætis skýring á þeirri þróun," segir í Markaðspunktunum.„Án banka í slitameðferð var viðskiptajöfnuður neikvæður um 3,7% af VLF árið 2010.Þegar búið er að gera ráð fyrir hlut erlendra kröfuhafa í gömlu bönkunum var viðskiptajöfnuðurinn hinsvegar jákvæður um 6,4% af VLF.Þegar ennfremur er búið að taka Actavis út úr sviðsmyndinni er viðskiptaafgangurinn hvorki meira né minna en 13% af VLF sem gera um 200 milljarða kr. á áriEf matið í skýrslunni stenst er ljóst að afgangur á vöru- og þjónustuviðskiptum mun duga til að standa undir vaxta- og arðgreiðslum til erlendra aðila ásamt því að töluvert svigrúm verður til að greiða niður skuldir þjóðarbúsins."
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Sjá meira