Hætt við rannsókn á viðskiptum stjórnenda SPRON 20. janúar 2011 09:56
Rannsókn á viðskiptum stjórnarmanna í SPRON, sem kærð voru af Vilhjálmi Bjarnasyni lektor við Háskóla Íslands, hefur verið hætt með vísan til laga um meðferð sakamála. Ekkert var talið benda til að stjórn SPRON hafi brotið lög. Viðskiptablaðið greinir frá þessu í dag. Þar segir að kærandi í málinu var Þórarinn V. Þórarinsson hrl. fyrir hönd Vilhjálms, en hún beindist að allri stjórn SPRON og forstjóra. Í stjórninni voru, á þeim tíma þegar viðskiptin áttu sér stað, Erlendur Hjaltason, Hildur Petersen, Jóhann Ásgeir Baldurs, Ari Bergmann Einarsson og Gunnar Þór Gíslason. Guðmundur Hauksson var forstjóri. Hinn 7. janúar sl. tilkynnti Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari kærðu og kæranda um þá ákvörðun að rannsókn málsins hefði verið hætt. Málið má rekja til viðskipta með stofnjárbréf sem áttu sér stað á sumarmánuðum ársins 2007, einkum eftir miðjan júlí, og fram í miðjan ágúst. Þá var lokað fyrir viðskipti með stofnfjárbréf þar sem ákveðið var að breyta SPRON í hlutafélag og skrá það á markað. Meðal þeirra sem seldu stofnfjárbréf voru þrír stjórnarmenn, Hildur Petersen stjórnarformaður, Gunnar Þór Gíslason og Jóhann Ásgeir Baldurs. Viðskipti Jóhanns Ásgeirs Baldurs voru óveruleg og fyrir margfalt minni fjárhæðir en í tilfelli þeirra fyrrnefndu. Mestu munaði um sölu Gunnars Þórs Gíslasonar, en hann seldi bréf fyrir því sem jafngilti um tveggja prósenta hlutar í sjóðnum, fyrir um tvo milljarða króna, að því er segir í Viðskiptablaðinu.
Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Fleiri fréttir Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Sjá meira