Fàbregas og varamaðurinn Messi báðir með tvö mörk í sigri Barcelona Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. janúar 2012 22:53 Cesc Fàbregas fagnar með Xavi og Dani Alves í kvöld. Mynd/AP
Cesc Fàbregas var í aðalhlutverki í kvöld þegar Barcelona vann 4-0 sigur á Osasuna í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum spænska Konungsbikarsins. Fàbregas skoraði tvö fyrstu mörkin og lagði síðan upp það þriðja fyrir varamanninn Lionel Messi sem átti síðan efrtir að bæta við öðru marki sínu rétt fyrir leikslok. Barcelona er því í góðum málum fyrir seinni leikinn sem fer fram á heimavelli Osasuna í næstu viku. Real Madrid vann 3-2 sigur á Malaga í fyrri leik sínum í gær en Real og Barca munu mætast komist þau í átta liða úrslit keppninnar. Cesc Fàbregas kom Barcelona í 1-0 á 14. mínútu eftir sendingu frá Xavi og þeir endurtóku leikinn rúmum fjórum mínútum síðar. Lionel Messi var með flensu og átti ekki að spila leikinn en kom inn á sem varamaður fyrir Pedro á 60. mínútu. Messi kom Barcelona síðan í 3-0 á 74. mínútu með skalla eftir sendingu frá Fàbregas og bætti síðan við fjórða markinu í uppbótartíma. Fàbregas hefur þar með skorað 13 mörk og gefið 10 stoðsendingar í 22 leikjum með Barcelona á sínu fyrsta tímabili hjá félaginu. Messi er hinsvegar búinn að skora 31 mark í 27 leikjum á leiktíðinni.
Spænski boltinn Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ Fótbolti Fleiri fréttir Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Sjá meira