Innlent

Þórólfur Árnason íhugar líka forsetaframboð

Erla Hlynsdóttir skrifar
Þórólfur Árnason, fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur, hefur um hríð velt fyrir sér að gefa kost á sér til embættis forseta Íslands. Elín Hirst er einnig alvarlega að íhuga framboð.

Fréttastofa ræddi í dag við nokkra þeirra sem íhuga að gefa kost á sér. Þórólfur hefur ekki áður tjáð sig um forsetaframframboðið.

Hann segir stuðningsmenn sína hafa unnið að mögulegu framboði í nokkurn tíma. Það hafi hins vegar komið upp ný staða þegar Ólafur Ragnar Grímsson ákvað að gefa kost á sér áfram.

Þórólfur telur líklegt að framboð Ólafs hafi sett fleiri en hann í biðstöðu. Hann vill hvorki segja af né á um hvort hann ætlar fram.

Elín Hirst fjölmiðlakona segist í samtali við fréttastofu alvarlega vera að íhuga að gefa kost á sér. Hún segir að mörgu að huga varðandi framboð, meðal annars þeim mikla kostnaði sem því fylgi. Samkvæmt kostnaðarmati sem fréttastofa lét gera í gær má hver frambjóðandi reikna með um þrjátíu milljónum í framboðið.

Elín telur tími til kominn að annar taki við keflinu af Ólafi Ragnari, hvort sem það er hún sjálf eða annar.

Stefán Jón Hafstein virðist áhugasamur um framboð. Í Fréttablaðinu í dag birtist grein eftir Stefán Jón þar sem hann skorar á Ólaf Ragnar að gera grein fyrir því af hverju hann telur þörf á því að hann gefi áfram kost á sér. Þá rifjar hann upp tengsl Ólafs Ragnars við útrásina umdeildu, og segir að það jafngildi uppgjöf að kjósa „forseta Gamla Íslands enn á ný eftir sextán ára setu á þeim valdastóli."

Ekki náðist tal af Stefáni Jóni sem nú staddur í Malaví þar sem hann starfar fyrir Þróunarsamvinnustofnun Íslands.

Ari Trausti Guðmundsson jarðfræðingur segir það ekki hafa skipt sig máli hvort Ólafur Ragnar myndi gefa kost á sér. Mögulegt framboð hans sé óháð því. Ari Trausti reiknar með að taka endanlega ákvörðun öðru hvoru megin við páska: Hann segir kostnaðinn vissulega skipta máli.

Þóra Arnórsdóttir fjölmiðlakona hefur einnig verið nefnd sem mögulegur frambjóðandi, en ekki náðist tal af henni í dag.

Þegar hafa þeir Ástþór Magnússon og Jón Lárusson tilkynnt um framboð.

Það eru því margir sem líta hýru auga til Bessastaða en spurningin er aðeins ein: Er einhver nógu sterkur til að fella Ólaf Ragnar?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×