Bætir Messi markametið hjá Barcelona? | bein útsending í kvöld 20. mars 2012 11:30 Lionel Messi er í þeirri aðstöðu að geta jafnað og bætt markametið hjá spænska stórliðinu Barcelona í kvöld. Getty Images / Nordic Photos
Lionel Messi er í þeirri aðstöðu að geta jafnað og bætt markametið hjá spænska stórliðinu Barcelona í kvöld þegar liðið tekur á móti Granada í deildarkeppninni. Argentínumaðurinn hefur skorað 231 mark fyrir félagið en félagsmetið er í eigu Cesar Rodriguez sem skoraði 232 mörk á sínum ferli. Leikur Barcelona og Granada verður í beinni útsendingu á Stöð 2 sport og hefst leikurinn kl. 20.00. Barcelona má ekki gera nein mistök það sem eftir er tímabilsins ætli liðið sér að verja Spánarmeistaratitilinn. Real Madrid er með 71 stig að loknum 27 umferðum en Barcelona leikur sinn 28 leik í kvöld og er liðið 8 stigum á eftir Real Madrid. Rodriguez var sagður hafa skorað alls 235 mörk fyrir Barcelona en við nánari athugun reyndist hann vera með of mörg mörk skráð á sig. Messi, sem er aðeins 24 ára gamall, hefur þrívegis verið valinn besti leikmaður heims af FIFA. Hann hefur skorað 45 mörk í 39 leikjum á þessari leiktíð. Messi skoraði síðara mark Barcelona í 2-0 sigri liðsins gegn Sevilla s.l. laugardag. Rodriguez var á hápunkti ferilsins snemma á fimmta áratug síðustu aldar og hann á met þegar opinberir leikir eru teknir saman. Paulino Alcantara hefur hinsvegar skorað flest mörk allra ef vináttu og æfingaleikir eru teknir með í reikninginn. Hann skoraði 369 mökr í 357 leikjum.
Spænski boltinn Mest lesið 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Viktor Gísli varð fárveikur á HM Handbolti Bakgarðsáskorunin: „Éta eða vera étinn“ Sport Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Arnar ætlar ekki að tjá sig og Laddar Liverpool-borgar eru í yfirvinnu Sport Sláttuvél tók á loft í Svíþjóð Sport Reikna með Kane en vita ekki hvenær Körfubolti „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ Körfubolti Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Körfubolti Fleiri fréttir Króatía - Ísland | Mikilvægur leikur í umspili fyrir HM Systurnar saman í byrjunarliði Íslands „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Mourinho tekur upp hanskann fyrir Mbappe „Ef ég myndi segja allar þá myndi fólk halda að ég væri klikkuð“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Ungu strákarnir okkar slást við Grikki um sæti á EM Í tveggja leikja bann fyrir að kippa í hárið Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Siggi Raggi saknar barnanna og gefur íslenskum liðum undir fótinn Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Sjá meira