BBC og Sky: Guardiola hættir hjá Barcelona Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. apríl 2012 17:42 Nordic Photos / Getty Images
Pep Guardiola mun á morgun tilkynna opinberlega ákvörðun sína um að stíga frá borði sem knattspyrnustjóri Barcelona í lok tímabilsins, samkvæmt fréttum á bæði BBC og Sky Sports. Heimildir miðlanna herma að Guardiola hafi fundað með Sandro Rosell, forseta félagsins, í dag þar sem sá fyrrnefndi tjáði þá skoðun sína að hann gæti ekki haldið áfram með liðið. Barcelona féll úr leik í Meistaradeild Evrópu á þriðjudagskvöldið og tapaði einnig fyrir Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni um helgina. Segir í fréttunum að boðað hafi verið til blaðamannafundar á morgun þar sem þetta verður tilkynnt. Það er þó ekki talið útilokað að Guardiola muni skipta um skoðun á síðustu stundu en langlíklegast er að hann hætti. Rossell hefur ítrekað sagt í fjölmiðlum að hann vilji halda Guardiola og samkvæmt BBC mun hann hafa lofað stjóranum ótakmarkað fjármagn til að styrkja leikmannahópinn. En Guardiola mun ekki hafa haggast í ákvörðun sinni. BBC segir einnig að Guardiola hafi í hyggju að taka sér ársfrí frá knattspyrnu en hann er 41 árs gamall og fyrrum leikmaður og fyrirliði Barcelona til margra ára. Síðan hann tók við Barcelona fyrir fjórum árum síðan hefur hann orðið sigursælasti stjóri liðsins frá upphafi. Hann hefur til að mynda unnið Meistaradeildina tvívegis, spænsku úrvalsdeildina þrisvar og bikarinn tvisvar - svo eitthvað sé nefnt.
Spænski boltinn Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Fleiri fréttir Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Sjá meira