Besta veiði frá því seiðasleppingar hófust fyrir 20 árum! Svavar Hávarðsson skrifar 29. júní 2012 19:23 Lífið er ljúft á bökkum Ytri þessa dagana. Mynd/lax-a.is
Ytri Rangá er komin í 54 laxa miðað við tölur í lok dags í gærkvöldi. Verður það að teljast frábær veiði á innan við viku í lok júní en áin opnaði 24.júní síðastliðinn. Í gær, fimmtudag, veiddust 14 laxar og einn meðal annars í Árbæjarfossi uppá svæði níu en lax er búinn að dreifa sér um alla á, eins og kemur fram á vefnum lax-a.is. Þeir hjá Lax-á tóku stöðumat í gær og komust að því að eftir fjóran og hálfan veiðidag hafði Ytri skilað hátt í 50 löxum, en það er mesta veiði sem verið hefur í ánni frá því seiðasleppingar hófust fyrir rúmum 20 árum. Metárið 2008 voru t.d. komnir 28 laxar á land a þessum degi! Þarf að minna á þessar veiðitölur:20114.96120106.210200910.749200814.315 Það er eitthvað mikið að gerast í Ytri Rangá, enda hefur Veiðivísir sagt frá því undanfarnar vikur að lax gekk fyrr en menn hafa áður séð. Svo ramt kvað að að veiðimenn sem hafa fetað bakka Ytri í gegnum árin efuðust um þessar sögur af laxagöngum. Það reyndist óþarfa svartsýni eins og veiðin í ánni sannar frá því hún opnaði. Ástæða er því til að hvetja veiðimenn til að ganga úr skugga um hvort laus eru veiðileyfi um og eftir helgina enda stórstreymt 5. júlí og útlitið því afburða gott fyrir næstu daga og vikur.Sjá agn.is svavar@frettabladid.is
Stangveiði Mest lesið Leirvogsá er komin í gang Veiði Öll veiðisvæði SVAK komin á vefinn Veiði Fyrstu veiðitölur frá Landssambandi Veiðifélaga Veiði Flottur lax úr Svartá Veiði Íslensku hrosshárin slógu í gegn Veiði Veiðidagur fjölskyldunnar 26. júní Veiði Um 40 laxar komnir úr Korpu Veiði Flott veiði í Grenlæk svæði 4 Veiði Saga af hrygnu í ánni Liza Veiði Langá opnaði í morgun með tveimur löxum Veiði