Íslendingar ekki bjartsýnni í fjögur ár Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. ágúst 2012 13:52 Fólk er bjartsýnt fyrir framtíðina. mynd/ daníel rúnarsson
Íslendingar hafa ekki verið bjartsýnni á stöðu efnahags- og atvinnumála í fjögur ár, eða frá því í apríl 2008, ef marka má væntingavísitölu Capacent Gallup sem birt var í morgun. Vísitalan fyrir ágústmánuð er 85,5 stig og hækkar um 1,1 stig frá fyrri mánuði, en hún hækkaði jafnframt talsvert í júlí, eða um 4,5 stig. Í morgunkorni Greiningar Íslandsbanka í dag er ítarleg umfjöllun um væntingarvísitöluna. Þar segir að hún hafi nú hækkað samfellt undanfarna 5 mánuði sem endurspeglar léttari lund landans eftir því sem efnahagsbatinn festir sig betur í sessi, atvinnuástandið batnar og horfurnar fyrir framtíðina skýrast. Enn er vísitalan þó undir 100 stigum sem þýðir að enn eru fleiri neikvæðir en jákvæðir, en núna í ágúst voru 10% svarenda jákvæðir á núverandi ástand í efnahags og atvinnumálum á meðan 41,6% voru neikvæðir. Þegar vísitalan fer yfir 100 stig eru fleiri jákvæðir en neikvæðir, en það hefur ekki gerst síðan í febrúar 2008. Þrátt fyrir að enn séu fleiri neikvæðir en jákvæðir á núverandi ástand er bjartsýnin varðandi framtíðina öllu meiri, Undirvísitalan sem mælir væntingar til 6 mánaða stendur nú í 108,9 stigum og hækkar um 2 stig frá fyrri mánuði. Vísitalan hefur verið yfir 100 stigum samfellt undanfarna fjóra mánuði sem bendir til þess að aukinn bjartsýni varðandi framtíðina sé að festa sig í sessi, og að landinn sé nú orðinn viss um að búið sé að bíta úr nálinni og ástandið fari nú upp á við. Vísitalan sem mælir mat á atvinnuástandi hækkar mikið frá fyrri mánuði, eða um 10 stig, sem endurspeglar bjartari horfur á atvinnumarkaði. Skráð atvinnuleysi í júlí mældist 4,7% og hefur það ekki verið minna síðan í nóvember árið 2008.
Mest lesið Daði Már kennir olíufélögunum um Viðskipti innlent Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Viðskipti innlent „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs Neytendur Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Viðskipti innlent Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Viðskipti innlent Ísland eins og stefnumótasíða í sjávarútvegi Atvinnulíf Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Viðskipti innlent Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Sjá meira