Veiðigjöld 6 prósent af rekstrarhagnaði Magnús Halldórsson skrifar 30. ágúst 2012 12:52
Veiðigjöld HB Granda, næst stærsta útgerðarfyrirtæki Íslands á eftir Samherja, námu um 1,8 milljónir milljónum evra á fyrri helmingi ársins, eða sem nemur ríflega 270 milljónum króna. Þetta nemur um sex prósentum af rekstrarhagnaði fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA-hagnaði), en hann nam 28,7 milljónum evra, eða sem nemur 4,4 milljörðum króna. Það er besta rekstrarafkoma í sögu fyrirtækisins, á tveimur ársfjórðungum. Tap tímabilsins, samkvæmt uppgjöri, nemur hins vegar 1,5 milljónum evra, það er tæplega 230 milljónum króna.Tapið skýrist einkum af gjaldfærslu vegna virðisrýrnunar aflaheimilda upp á 21,6 milljónir evra, eða um 3,4 milljarða króna. Fyrirtækið greiddi síðan niður vaxtaberandi skuldir um 23,9 milljónir evra eða 3,6 milljarða króna. Árið áður var hagnaður 15,7 milljónir evra, eða 2,4 milljarða króna, á sama tímabili, eftir því sem fram kemur í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar. Í tilkynningunni er bent á að Alþingi samþykkti í lok júní síðastliðnum ný lög um veiðigjöld sem fela í sér að veiðigjöld HB Granda hf. rúmlega fjórfaldast frá síðasta fiskveiðiári. Miðað við forsendur laganna nema áætluð veiðigjöld til greiðslu vegna fiskveiðiársins 2012/2013 tveimur milljörðum króna. Eftir það er gert ráð fyrir stighækkandi sérstöku veiðigjaldi þar til veiðigjöldin á fiskveiðiárinu 2016/2017 ná 65% af sérstaklega reiknaðri rentu allra sjávarútvegsfyrirtækja samanlagt byggt á almanaksárinu 2014. Segir að veruleg hækkun á veiðigjöldum félagsins lækki rekstrarvirði þess. Sjá má tilkynningu HB Granda hér.
Mest lesið Daði Már kennir olíufélögunum um Viðskipti innlent Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Viðskipti innlent „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs Neytendur Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Viðskipti innlent Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Viðskipti innlent Ísland eins og stefnumótasíða í sjávarútvegi Atvinnulíf Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Viðskipti innlent Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Sjá meira