Íbúðum í eigu ÍLS fjölgaði um 1.700 á þremur árum 4. september 2012 07:52
Íbúðum í eigu Íbúðalánasjóðs (ÍLS) heldur áfram að fjölga og í júnílok átti sjóðurinn samtals 2.049 fasteignir og hefur þeim fjölgað um 443 síðan í upphafi ársins. Fasteignum í eigu sjóðsins hefur fjölgað verulega undanfarin misseri í byrjun árs 2010 átti sjóðurinn 347 íbúðir og hefur þeim því fjölgað um 1.709 á innan við þremur árum. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þessi mikla aukning er tilkomin vegna greiðsluerfiðleika lántakenda hjá sjóðnum en á fyrri helmingi ársins leysti sjóðurinn til sín 501 fasteign og seldi 58 fasteignir. Fasteignir í útleigu í lok júní voru 846 eða sem nemur 41% af heildarfjölda fasteigna sjóðsins og námu leigutekjur af fasteignunum samtals 449,6 milljónum kr. á fyrri árshelmingi. Árið 2010 leysti Íbúðalánasjóður til sín 854 fasteignir til fullnustu krafna og á síðasta ári voru 691 fasteignir innleystar. Íbúðalánasjóður á því um það bil 1,6% af öllum íbúðum í landinu. Ljóst er að svo mikið framboð fasteigna gæti haft áhrif á íbúðaverð til lækkunar ef það yrði losað inn á markaðinn á stuttum tíma. Það er hinsvegar ólíklegt að það gerist en Íbúðalánasjóður hefur farið sér mjög hægt í þessum efnum. Á síðasta ári seldi sjóðurinn 154 íbúðir og á árinu 2010 voru 132 íbúðir seldar. Það sem af er þessu ári hefur sjóðurinn selt 58 íbúðir.
Mest lesið Daði Már kennir olíufélögunum um Viðskipti innlent Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Viðskipti innlent Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs Neytendur „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Viðskipti innlent Ísland eins og stefnumótasíða í sjávarútvegi Atvinnulíf Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Viðskipti innlent Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Viðskipti innlent Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Sjá meira