Íbúðalánasjóður yfirtók 500 íbúðir Jón Hákon Halldórsson skrifar 3. september 2012 13:06 Ólíklegt er að Íbúðalánasjóður selji margar íbúðir í einu. mynd/ hag
Íbúðum í eigu Íbúðalánasjóðs fjölgaði um 443 á fyrstu sex mánuðum ársins, en þær voru 2049 í júnílok. Fasteignum í eigu sjóðsins hefur fjölgað verulega undanfarin misseri í byrjun árs 2010 átti sjóðurinn 347 íbúðir og hefur þeim því fjölgað um 1.709 á innan við þremur árum. Þetta kemur fram í árshlutareikningi Íbúðalánasjóðs. Í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka segir að þessi mikla aukning sé tilkomin vegna greiðsluerfiðleika lántakenda hjá sjóðnum en á fyrri helmingi ársins leysti sjóðurinn til sín 501 fasteign og seldi 58 fasteignir. Fasteignir í útleigu í lok júní voru 846 eða sem nemur 41% af heildarfjölda fasteigna sjóðsins og námu leigutekjur af fasteignunum samtals 449,6 milljónir króna á fyrri árshelmingi. Árið 2010 leysti Íbúðalánasjóður til sín 854 fasteignir til fullnustu krafna og á síðasta ári voru 691 fasteignir innleystar. Íbúðalánasjóður á því um það bil 1,6% af öllum íbúðum í landinu. Greining Íslandsbanka segir ljóst að svo mikið framboð fasteigna gæti haft áhrif á íbúðaverð til lækkunar ef það yrði losað inn á markaðinn á stuttum tíma. Það er hinsvegar ólíklegt að það gerist en Íbúðalánasjóður hefur farið sér mjög hægt í þessum efnum. Á síðasta ári seldi sjóðurinn 154 íbúðir og á árinu 2010 voru 132 íbúðir seldar. Það sem af er þessu ári hefur sjóðurinn selt 58 íbúðir.
Mest lesið Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Viðskipti innlent Daði Már kennir olíufélögunum um Viðskipti innlent Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs Neytendur „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Viðskipti innlent Ísland eins og stefnumótasíða í sjávarútvegi Atvinnulíf Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Viðskipti innlent Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Sjá meira