Ísfélagið hagnast um 4,5 milljarða 2. september 2012 21:30 Guðbjörg Matthíasdóttir, aðaleigandi Ísfélags Vestmannaeyja, sem gerir út sjö skip til veiða. Guðbjörg er einn ríkasti Íslendingurinn, og hefur árum saman verið á meðal þeirra sem greiða hæst opinber gjöld ár hver.
Ísfélag Vestmannaeyja hagnaðist um 36,8 milljónir dala á síðasta ári, eða sem nemur tæplega 4,5 milljörðum króna. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam ríflega 55 milljónum dala, eða sem nemur 6,7 milljörðum króna. Þessi rekstrarniðurstaða var kynnt á aðalfundi félagsins sem fram fór í byrjun síðustu viku. Þetta er besta rekstrarniðurstaða Ísfélagsins sé horft til ársreikninga síðustu fimm ára, en hagnaður félagsins á árinu 2010 nam 18,4 milljónum dala, jafnvirði um 2,2 milljarða króna miðað við núverandi gengi. Stærsti eigandi Ísfélagsins er Guðbjörg Matthíasdóttir, með tæplega 90 prósent hlut, en afgangur hlutfjárins skiptist á nokkra hluthafa. Arður til hluthafa fyrir árið 2011 nemur ríflega sjö milljónum dala, samkvæmt heimildum fréttastofu, eða sem nemur tæplega milljarði króna. Arður til hluthafa fyrir árið 2010 nam um 6,9 milljón dölum, eða sem nemur ríflega 840 milljónum króna. Samanlagður arður til hluthafa Ísfélagsins fyrir árin 2010 og 2011 nemur því 1.840 milljónum króna, miðað við núverandi gengi. Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, stjórnarformaður Ísfélagsins, staðfesti að uppgjör fyrir árið í fyrra hefði verið kynnt hluthöfum á aðalfundi í síðustu viku, en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um gang mála hjá félaginu. Hann sagði að ársreikningi fyrir árið 2011 yrði skilað til ársreikningarskrár, eins og lög gera ráð fyrir, en frestur til þess, fyrir reikningsárið frá 1. jan 2011 til 31. desember 2011, rennur út nú í byrjun septembermánaðar. Hann vísaði að öðru leyti á Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóra Ísfélagsins, en fréttastofa hefur ekki náð af honum tali.
Mest lesið Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Viðskipti innlent Daði Már kennir olíufélögunum um Viðskipti innlent Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs Neytendur „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Viðskipti innlent Ísland eins og stefnumótasíða í sjávarútvegi Atvinnulíf Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Viðskipti innlent Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Sjá meira