Stelpurnar töpuðu með sjö mörkum á móti Svíum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. október 2012 18:29 Mynd/Valli
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tapaði með sjö mörkum, 16-23, í fyrri æfingaleik sínum á móti sænska landsliðinu en þjóðirnar mættust í Sparbankshallen í Varberg í kvöld. Sænska liðið er sterkt og var með á Ólympíuleikunum í London fyrr í haust. Svíar hafa unnið alla fjórtán landsleiki þjóðanna frá upphafi en þær sænsku höfðu unnið tvo nauma sigra í tveimur æfingaleikjum á Íslandi í lok maí 2011. Íslenska liðið byrjaði vel og var 4-3 yfir eftir ellefu mínútur. Sænska liðið skoraði þá sex mörk í röð og tók frumkvæðið í leiknum. Þær sænsku voru síðan 13-9 yfir í hálfleik. Báðar þjóðir eru að undirbúa sig fyrir EM í Serbíu í desember þar sem Svíar eru í riðli með Danmörku, Makedóníu og Frakklandi en íslensku stelpurnar eru í riðli með Svartfjallalandi, Rúmeníu og Rússlandi.Mörk Íslands í leiknum skoruðu: Karen Knútsdóttir 3, Stella Sigurðardóttir 3, Þórey Rósa Stefánsdóttir 2, Rut Jónsdóttir 2, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 2, Dagný Skúladóttir 2, Ramune Pekarskyte 1 og Hanna G. Stefánsdóttir 1.Í markinu varði Guðný Jenný Ásmundsdóttir 15 bolta.Liðin mætast aftur á morgun í síðari leik liðanna.
Íslenski handboltinn Handbolti Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Enski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira