Marvin illviðráðanlegur í byrjun móts Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. október 2012 22:45 Marvin Valdimarsson. Mynd/Vilhelm
Marvin Valdimarsson hefur heldur betur farið vel af stað með Stjörnunni í Dominos-deild karla í körfubolta en hann skoraði 31 stig í sigri á Keflavík í Garðabænum í 2. umferðinni. Marvin hefur nú skorað 57 stig í fyrstu tveimur leikjum Stjörnunnar eða 28,5 stig að meðaltali. Stjarnan hefur unnið báða þessa leiki, með 11 stigum á móti Tindastóls á Króknum, 90-79, og með 18 stigum á móti Keflavík á heimavelli, 101-83. Marvin er eins og er þriðji stigahæsti leikmaður deildarinnar því Páll Axel Vilbergsson í Skallagrím hefur skorað 30,0 stig í leik og Samuel Zeglinski hjá Grindavík er með 29,5 stig að meðaltali. Marvin er eini þeirra sem hefur brotið 25 stiga múrinn í báðum leikjunum og sá sem er með hæsta framlagið í deildinni. Marvin skorað 39 stig í fyrstu tveimur deildarleikjum sínum í fyrra en hann endaði þá tímabilið með 13,9 stig að meðaltali í leik. Marvin hefur nýtt 68 prósent skota sinna í þessum tveimur leikjum, skoraði 26 stig og hitti úr 9 af 13 skotum á móti Tindastól (69 prósent) og var með 31 stig og 67 prósent skotnýtingu (12 af 18) á móti Keflavík. Marvin hefur verið duglegur að skora inn í teig og samkvæmt tölfræði á heimasíðu KKÍ hefur hann skorað 18 af 21 körfu sinni inn í teig. Þar kemur líka fram að hann er sérstaklega öflugur í þriðja leikhlutu þar sem hann hefur skorað 22 af 57 stigum sínum í þessum fyrstu tveimur umferðum.
Dominos-deild karla Mest lesið Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Fótbolti Veikindi herja á norska liðið Fótbolti 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Körfubolti Forsætisráðherra Kanada óskaði eftir því að deila Haaland á næsta HM Fótbolti Tuchel bannar Englendingum að stökkva yfir auglýsingaskilti eftir ófarir Henderson Fótbolti Í átta liða úrslit í fyrsta sinn í 72 ár Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Segist ekkert hafa með afléttingu bannsins að gera Fótbolti Fleiri fréttir 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Sjá meira