Skallagrímur vann á flautukörfu Eiríkur STefán Ásgeirsson skrifar 11. október 2012 21:07
Skallagrímur vann góðan sigur á Njarðvík á heimavelli en fjórir leikir fóru fram í Domino's-deild karla í kvöld. KR hafði betur gegn Tindastóli en nánar er fjallað um leikinn hér. Þá vann Grindavík góðan sigur á Snæfelli á heimavelli, 110-102, og er fjallað um leikinn hér. Stjarnan vann Keflavík, 101-83, á heimavelli í kvöld en lesa má um leikinn hér. Í Borgarnesi voru heimamenn undir í hálfleik gegn Njarðvíkingum. Leikmenn Skallagríms voru þó öflugir í þriðja leikhluta sem þeir unnu með 23 stigum gegn ellefu. Staðan var svo jöfn, 74-74, en Carlos Medlock tryggði Skallagrími sigur með því að setja niður þrist um leið og leiktíminn rann út. Medlock skoraði sautján stig fyrir Skallagrím en Haminn Quaintance kom næstur með sextán stig og Páll Axel Vilbergsson skoraði fimmtán. Hjá Njarðvík var Jeron Belin stigahæstur með 24 stig en Elvar Már Friðriksson skoraði 20.Skallagrímur-Njarðvík 77-74 (13-21, 18-17, 23-11, 23-25)Skallagrímur: Carlos Medlock 17, Haminn Quaintance 16/8 fráköst, Páll Axel Vilbergsson 15/9 fráköst/5 stoðsendingar, Orri Jónsson 12/5 fráköst, Trausti Eiríksson 7/6 fráköst, Sigmar Egilsson 5, Hörður Helgi Hreiðarsson 3, Birgir Þór Sverrisson 2.Njarðvík: Jeron Belin 24/6 fráköst, Elvar Már Friðriksson 20/4 fráköst/5 stoðsendingar, Marcus Van 14/18 fráköst, Friðrik E. Stefánsson 8/5 fráköst, Maciej Stanislav Baginski 6, Ágúst Orrason 2/5 fráköst.
Dominos-deild karla Mest lesið Toppsætið endurheimt með átta marka stórsigri Fótbolti Tvenna Diallo tryggði fyrsta sigurinn Fótbolti Körfuboltamennirnir sem Nablinn væri mest til í að taka tali Körfubolti Rice tábrotinn en ætlar að spila á sunnudag Enski boltinn Sigrinum óvænt stolið af Sociedad eftir jöfnunarmark Orra Fótbolti Kristian aftur í leikmannahópi Ajax | Sverrir stóð í vörn Panathinaikos Fótbolti „Erum lágvaxið lið í þessum glugga og þurfum að vera villingar“ Sport Víkingar komnir í 750 milljónir og gætu spilað fram í febrúar Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Slóvakía 70-78 | Svekkjandi tap gegn Slóvakíu Körfubolti Tvö mörk á tveimur mínútum tryggðu sigur Fótbolti Fleiri fréttir Körfuboltamennirnir sem Nablinn væri mest til í að taka tali Uppgjörið: Ísland - Slóvakía 70-78 | Svekkjandi tap gegn Slóvakíu Davíð Tómas dæmir landsleik í Helsinki í dag Þreytir frumraun þrítug: „Beðið eftir þessu í tvö ár“ „Verður sérstök stund fyrir hana“ „Þessi takki sem allir halda að Valur sé að fara kveikja á er ekki til“ Ekki spilað eina mínútu en dæmdur í bann Tommi með Nablann í bandi í Keflavík Klikkaði ekki á skoti í fyrsta leik og var stigahæstur „Þessi tími hefur liðið mjög hægt fyrir mér“ Pavel um varnarleik Keflavíkur: Á að særa stolt þitt Jordan-treyja seldist á 642 milljónir króna Fjórði stigahæsti kaninn en sá með lélegustu skotnýtinguna Tvær stórbrotnar körfur Ja Morant „Þurfum að passa upp á það að hafa gaman“ Vandræði utan vallar höfðu sitt að segja Popovich frá um óákveðinn tíma vegna veikinda Wendell Green rekinn frá Keflavík Sá langelsti stóð upp úr í Suðurlandsslag Erfitt hjá „sultunni“ Joel Embiid NBA-stjörnurnar þurftu að taka lestina á leikinn sinn Hannes í leyfi Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 92-87 | Stólarnir fyrstir til að vinna Stjörnuna Alba Berlin í vandræðum og stórleikur Martins dugði ekki til sigurs Mættur til tengdó og gírar sig upp fyrir Síkið Framlenging Körfuboltakvölds: Njarðvík getur orðið Íslandsmeistari eins og Valur Tvö lið enn ósigruð og Thunder að eiga bestu byrjun í sögu félagsins Réðst á blaðamann vegna ummæla um látinn bróður hans og nýfæddan son „Það þarf svo margt að ganga upp til að þeir vinni“ Minnkuðu muninn um tuttugu stig á þremur mínútum gegn gamla liði Elvars Sjá meira