Menning

Blóðbandabrullaup

Víkingur Kristjánsson og Þórunn Erla í hlutverkum sínum, sem hjónin Ríkharður og Marta. Faðir Mörtu býður þeim og bræðrum hennar í brúðkaup, sem á eftir að draga dilk á eftir sér.
Víkingur Kristjánsson og Þórunn Erla í hlutverkum sínum, sem hjónin Ríkharður og Marta. Faðir Mörtu býður þeim og bræðrum hennar í brúðkaup, sem á eftir að draga dilk á eftir sér.
Leikritið Bastarðar eftir þá Gísla Örn Garðarsson, sem jafnframt leikstýrir, og Bandaríkjamanninn Richard LaGravenese er samstarfsverkefni Vesturports, Borgarleikhússins Malmö Statsteater og Teater Far302 í Kaupmannahöfn. Verkið var forsýnt með íslenskum, sænskum og dönskum leikurum á Listahátíð í vor og svo sýnt í Malmö og Kaupmannahöfn í sumar og haust við góðar undirtektir.

Einungis íslenskir leikarar verða í sýningunni í Borgarleikhúsinu en verkið hefur verið þróað enn frekar frá forsýningu í vor. Víkingur Kristjánsson er í hópi þeirra sem leika í báðum uppfærslum en hann er í sitt hvoru hlutverkinu.

"Það er verulega skemmtilegt að flakka svona á milli hlutverka," segir Víkingur. "Hlutverkið sem ég leik núna er nokkurn veginn eins og í fyrri uppfærslunni, nema ég er nokkuð yngri en sá sem lék það úti. Ég reyni að passa það að gera það að mínu."

Velgengni Vesturports á erlendri grundu er kunnari en frá þurfi að segja og Víkingur segist hættur að kippa sér upp við það að ferðast á milli landa til að sýna.

"Það er orðið svo til sjálfsagt mál núorðið, en var það alls ekki fyrir nokkrum árum." Samhliða velgengni utanlands hefur samstarf hópsins við erlenda listamenn, leikhópa og handritshöfunda færst í aukana. Er Vesturport enn þá íslenskur hópur eða er hann orðinn alþjóðlegur?

"Já já, við erum alíslensk og gefum okkur ekki út fyrir að vera neitt annað," segir Víkingur. "Sjálfsagt spilar það inn í af hverju við þykjum spennandi úti, það vinnur að minnsta kosti með okkur að vera frá Íslandi."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.