Íslandsbanki endurreiknar 6.000 gengislán og samninga 26. október 2012 07:44
Íslandsbanki hefur hafið endurútreikning á lánum einstaklinga og fyrirtækja sem bankinn telur að falli undir dóma Hæstaréttar frá 15. febrúar og 18. október sl. Um er að ræða ólögmæt gengistryggð lán sem lántakar hafa greitt af í samræmi við gildandi skilmála á hverjum tíma. Í tilkynningu segir að það sé mat bankans að dómurinn frá 18. október taki einnig til ákveðinna lána sem tekin voru til skemmri tíma en þau sem reyndu á í dómunum og hefur bankinn því að auki hafið endurútreikning á ólögmætum gengistryggðum bílalánum og bíla- og kaupleigusamningum. Samkvæmt bráðabirgðaúttekt er samtals um að ræða að minnsta kosti 6.000 lán/samninga. Dómurinn frá 18. október varpar frekara ljósi á með hvaða hætti lán skulu endurreiknuð og leysir þannig ákveðna óvissu. Óvissu er þó ekki að fullu eytt þar sem enn á eftir að fá leyst úr nokkrum álitaefnum fyrir dómstólum, t.a.m. varðandi lán sem ekki hafa verið í skilum. Meðan beðið er niðurstöðu varðandi þessi álitamál mun Íslandsbanki hraða þeirri vinnu sem snýr að bankanum eins og frekast er kostur. Þann 9. júní s.l. kvað Hæstiréttur úr um að húsnæðislán Íslandsbanka í erlendri mynt væri löglegt erlent lán. Hafði Íslandsbanki þá þegar endurreiknað öll húsnæðislán í erlendum gjaldmiðlum sem og öll erlend lán sem tryggð voru með veði í íbúðarhúsnæði og þar með gengið lengra í endurreikningi erlendra húsnæðislána en lög frá Alþingi kváðu á um. Með hliðsjón af niðurstöðu Hæstaréttar frá 15. febrúar og 18. október sem tóku til fullnaðarkvittana vegna ólögmætra lána munu dómarnir ekki eiga við um stærstan hluta húsnæðislána Íslandsbanka. Íslandsbanki mun halda þeim viðskiptavinum bankans sem endurútreikningurinn snertir upplýstum um framgang mála. Greiðsluseðlar ofangreindra lána verða sendir út með venjubundnum hætti. Bankinn áréttar að lántakendur fyrirgera ekki mögulegum betri rétti sínum þrátt fyrir áframhaldandi greiðslur af lánum sem fara í endurútreikning enda verði fullt tillit tekið til þess við leiðréttingu eftirstöðva.
Mest lesið Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Viðskipti innlent Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Alvotech Viðskipti innlent Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Viðskipti erlent „Svolítið blind á það hversu mikið forréttindafólk við erum“ Atvinnulíf Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Viðskipti innlent Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Viðskipti innlent Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Viðskipti innlent Kemur frá Icelandair til Varðar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Sjá meira