Vandamálin eru þegar farin að hrannast upp Magnús Halldórsson skrifar 8. nóvember 2012 19:00 Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
Vandamálin á fasteignamarkaði eru farin að hrannast upp, segir forseti Alþýðusambands Íslands, en hann segir mörg dæmi þess að ungt fólk hafi hvorki efni á því að leigja húsnæði né kaupa. Fasteignaverð hefur verið að hækka að undanförnu, og fjárfestar eru farnir að veðja á að verðið muni hækka umtalsvert á næstu árum. Eins og fréttastofa hefur greint frá undanfarna daga, hafa fjárfestar, þar á meðal lífeyrissjóðir, einkahlutafélög og tryggingafélög, í gegnum sérhæfða fasteignasjóði, verið að kaupa fasteignir á höfuðborgarsvæðinu, bæði atvinnuhúsnæði og íbúðir, fyrir um 40 milljarða króna undanfarin misseri. Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, segir að staðan á fasteignamarkaði sé orðin alvarleg, vegna hárrar leigu og erfiðleika við að fjármagna kaup. Augljóst ójafnvægi sé á markaði sem geti haft alvarlegar afleiðingar. „Þetta er ekki að verða vandamál, heldur er þetta orðið vandamál. Mjög margir hafa hvorki efni á því að leigja eða kaupa, og vandamálin vegna þessa hrannast upp," segir Gylfi. Fjármögnun húsnæðis er eitt af því sem Gylfi segir að sé fólki erfið. Dæmið lítur oft svipað þessu út. Íbúð kostar 21 milljón, hámarkslán er 16,8 milljónir og því þarf kaupandi að leggja fram 4,2 milljónir króna. Þetta fé eiga margir ekki til, ekki síst þar sem mánaðarleg greiðslubyrði á leigumarkaði er þyngri en afborgun af húsnæðisláni, í flestum tilvikum, og því er söfnun sparnaðar oft erfið og mjög hæg. Kaupendur eigna eru því oftast nær að fá lán frá aðstandendum, og þetta segir Gylfi að sé einfaldlega ekki í boði fyrir þá sem ekki eigi vel stæða að, og ýti undir stéttaskiptingu. „Það þarf að koma hér upp húsnæðisfjármögnunarkerfi þar sem leigutakar geta leigt til lengri tíma, og búa við öruggara umhverfi þegar kemur að leigunni. Þannig að það sé ekki hægt að henda því út við fyrsta hentugleika," segir Gylfi.
Mest lesið Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Viðskipti innlent Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Alvotech Viðskipti innlent Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Viðskipti erlent „Svolítið blind á það hversu mikið forréttindafólk við erum“ Atvinnulíf Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Viðskipti innlent Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Viðskipti innlent Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Viðskipti innlent Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Sjá meira