Skuldir heimila og fyrirtækja hafa lækkað í ár 14. nóvember 2012 10:18
Skuldir fyrirtækja námu um 169% af vergri landsframleiðslu í lok þriðja ársfjórðungs þessa árs og höfðu lækkað talsvert frá upphafi ársins þegar þær námu um 201% af landsframleiðslu. Á sama tíma höfðu skuldir heimila lækkað um sem nemur 6 prósentum af landsframleiðslu og námu um 108% af landsframleiðslu í lok september á þessu ári. Þetta kemur fram í Peningamálum Seðlabankans. Þar segir að skuldir einkageirans höfðu því lækkað í um 280% af landsframleiðslu um mitt þetta ár frá því að vera um 510% þegar þær náðu hámarki haustið 2008. Fjármálaleg skilyrði heimila og fyrirtækja hafa í meginatriðum haldið áfram að batna á árinu. Samhliða lækkun skulda einkageirans hefur eignaverð hækkað sem eykur hreint virði heimila og fyrirtækja og þar með veðrými þeirra til aukinnar lántöku. Skráðir vextir innlánsstofnana á verðtryggðum húsnæðislánum hafa einnig lækkað á árinu. Þannig eru vegnir meðalvextir stóru bankanna þriggja á verðtryggðum húsnæðislánum nú rúmlega 4,3% og hafa lækkað um 0,8 prósentur frá ársbyrjun. Á móti hafa vextir á almennum neyslulánum og óverðtryggðum húsnæðislánum hækkað i takt við hækkun vaxta Seðlabankans. Sambærileg þróun hefur verið í vaxtakjörum fyrirtækja. Fjölbreytni í fjármögnun þeirra virðist einnig vera að aukast á ný en fyrirtæki hafa í auknum mæli sótt sér fjármagn með skuldabréfaútgáfu, auk þess sem aukið líf virðist vera að færast í innlendan hlutabréfamarkað, þótt enn séu umsvif þar afar takmörkuð. Útlit er fyrir að fjárhagsstaða heimila og fyrirtækja haldi áfram að batna í kjölfar dóma Hæstaréttar frá 15. febrúar og 18. október sl. um gildi fullnaðarkvittana vegna uppgjörs ólöglegra gengistryggðra lána, að því er segir í Peningamálum.
Mest lesið Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Viðskipti innlent Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Alvotech Viðskipti innlent „Svolítið blind á það hversu mikið forréttindafólk við erum“ Atvinnulíf Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Viðskipti erlent Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Viðskipti innlent Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Viðskipti innlent Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Viðskipti innlent Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Sjá meira