Einn á móti fjórum í peningastefnunefndinni Magnús Halldórsson skrifar 28. nóvember 2012 17:38 Már Guðmundsson, seðlabankastjóri.
Einn nefndarmanna í Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands vildi halda vöxtum óbreyttum en ekki hækka þá um 0,25 prósentustig í sex prósent eins og gert var á síðasta vaxtaákvörðunardegi. Þetta kemur fram í fundargerð Peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands, frá fundi fyrir vaxtaákvörðunina síðustu. Í fundargerðinni segir meðal annars að einn nefndarmanna hefði ekki viljað styðja tillögu Más Guðmundssonar, seðlabankastjóra, um að hækka vexti þar sem hann teldi að merki um efnahagsbata væru enn veik. „Einn nefndarmaður greiddi hins vegar atkvæði gegn tillögu seðlabankastjóra og vildi halda vöxtum óbreyttum. Taldi hann batann enn viðkvæman þar sem vísbendingar væru um að hægt hefði á vexti innlendrar eftirspurnar og bati á vinnumarkaði væri enn hægur. Taldi hann litlar líkur á að mikil innlend eftirspurn orsakaði vaxandi verðbólgu, einkum í ljósi efnahagsástands í helstu viðskiptalöndum. Auk þess taldi hann áhrif hærri vaxta á gengi krónunnar vera óviss við skilyrði gjaldeyrishafta. Að lokum hefði vaxtahækkun neikvæð framboðsáhrif sem kæmu m.a. fram í auknum föstum kostnaði fyrirtækja sem yki þrýsting á vinnumarkaði," segir í fundargerðinni. Nefndarmenn í peningastefnunefndinni eru Már Guðmundsson, seðlabankastjóri og formaður nefndarinnar, Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri, Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur, Gylfi Zoëga, prófessor, og Katrín Ólafsdóttir, lektor. Aldrei er upplýst um hver er afstaða einstaka nefndarmanna til vaxtaákvarðana, undir nafni, í fundargerðunum. Sjá má fundargerð peningastefnunefndar hér.
Mest lesið Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Alvotech Viðskipti innlent „Svolítið blind á það hversu mikið forréttindafólk við erum“ Atvinnulíf Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Viðskipti innlent Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Viðskipti innlent Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Viðskipti innlent Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Viðskipti innlent Kemur frá Icelandair til Varðar Viðskipti innlent Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Fleiri fréttir Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Sjá meira