Aflaverðmætið hefur aukist um 9,5% í ár 27. nóvember 2012 09:05
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 108,6 milljörðum króna á fyrstu átta mánuðum ársins samanborið við 99,2 milljarða á sama tímabili í fyrra. Aflaverðmæti hefur því aukist um 9,5 milljarða eða 9,5% á milli ára. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að aflaverðmæti botnfisks var 63,8 milljarðar kr. og jókst um 5,4% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam 60,5 milljörðum kr. Verðmæti þorskafla var um 32,5 milljarðar og jókst um 12,4% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 8,5 milljörðum og jókst um 12,2% en verðmæti karfaaflans nam 9,1 milljarði, sem er 8,8% aukning frá fyrstu átta mánuðum ársins 2011. Verðmæti ufsaaflans jókst um 6,7% milli ára og nam 6,1 milljarði króna í janúar til ágúst 2012. Verðmæti uppsjávarafla nam um 32,8 milljörðum króna í janúar til ágúst 2012, sem er 15,9% aukning frá fyrra ári. Sú aukning skýrist að mestu af loðnuafla að verðmæti rúmum 13 milljörðum króna samanborið við 8,7 milljarða fyrstu átta mánuði ársins 2011. Einnig var 2,4 milljarða króna aukning í kolmunnaafla, sem nam um 2,6 milljörðum króna árið 2012. Verðmæti makrílafla dróst saman um 7,9% á milli ára og nam tæpum 13 milljörðum króna í janúar til ágúst 2012. Nær enginn annar uppsjávarafli var veiddur fyrstu átta mánuði ársins 2012, samanborið við gulldepluafla að verðmæti 261 milljón króna á sama tímabili árið 2011. Aflaverðmæti flatfisksafla nam um 7,6 milljörðum króna, sem er 11,2% aukning frá janúar til ágúst 2011. Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 51,9 milljörðum króna og jókst um 18,5% miðað við fyrstu átta mánuði ársins 2011. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 10,6% milli ára og nam tæpum 15 milljörðum króna. Aflaverðmæti sjófrystingar nam 37,2 milljörðum í janúar til ágúst og jókst um 1,4% milli ára en verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam rúmum 3,8 milljörðum króna, sem er 13,4% samdráttur frá árinu 2011.
Mest lesið Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Alvotech Viðskipti innlent „Svolítið blind á það hversu mikið forréttindafólk við erum“ Atvinnulíf Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Viðskipti erlent Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Viðskipti innlent Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Viðskipti innlent Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Viðskipti innlent Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Viðskipti innlent Kemur frá Icelandair til Varðar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Sjá meira