Mál gamla Straums keimlíkt máli tveggja miðlara hjá Kaupþingi Þorbjörn Þórðarson skrifar 26. nóvember 2012 12:30 William Fall, fyrrverandi forstjóri Straums, stýrði bankanum frá 29. maí 2007 til 18. mars 2008. Fall, sem er virtur í bankaheiminum og með yfir 30 ára reynslu, er nú yfirmaður hjá RBS. Í bakgrunni er Björgólfur Thor Björgólfsson, fyrrverandi aðaleigandi Straums.
Sérstakur saksóknari er nú með til rannsóknar meinta markaðsmisnotkun Straums-Burðaráss á árunum 2007 og 2008. Málið er keimlíkt öðru máli þar sem tveir miðlarar hjá Kaupþingi voru sakfelldir fyrir markaðsmisnotkun í desember 2009. Sérstakur saksóknari rannsakar meinta markaðsmisnotkun Straums-Burðaráss fjárfestingabanka vegna falskrar eftirspurnar með hlutabréf bankans á árunum 2007 og 2008. DV í dag greinir frá málinu en í frétt blaðsins segir að kæra hafi borist embættinu frá Fjármálaeftirlitinu fyrr á þessu ári. Fréttastofa hefur eftir traustum heimildum að fréttin sé rétt og að embætti sérstaks saksóknara hafi meinta markaðsmisnotkun Straums-Burðaráss til rannsóknar. Áréttað skal að málið tengist ekkert nýja Straumi (Straumi fjárfestingabanka) , sem er fjármálafyrirtæki í eigu ALMC hf. Málið mun snúast um tilburði starfsmanna Straums-Burðaráss til að hafa áhrif á hlutabréfaverð í Straumi með mörgum og ítrekuðum tilboðum í bréf félagsins í Kauphöll rétt fyrir lokun markaða tiltekna daga en grunsemdir eru um að þannig hafi verið sköpuð fölsk eftirspurn eftir bréfum í félaginu. Eitt slíkt mál hefur komið til kasta dómstóla eftir bankahrun. Tveir fyrrverandi verðbréfamiðlarar hjá Kaupþingi, Daníel Þórðarson og Stefnir Ingi Agnarsson, voru í desember 2009 dæmdir í átta mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir markaðsmisnotkun. Atvik málsins voru þau að þeir settu inn kauptilboð í skuldabréfaflokk Exista sex sinnum, í janúar og febrúar 2008, skömmu fyrir lokun markaða, þannig að tilboðin hefðu áhrif á dagslokagengi viðkomandi skuldabréfa í Kauphöllinni. Atvikalýsingin er því keimlík því sem er til rannsóknar vegna Straums-Burðaráss. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, vildi ekki tjá sig um rannsóknina í samtali við fréttastofu þegar eftir því var leitað. Ragnhildur Sverrisdóttir, talsmaður Björgólfs Thors Björgólfssonar fyrrverandi aðaleiganda Straums-Burðaráss, sagði að rannsókn á meintri markaðsmisnotkun Straums væru fréttir fyrir Björgólf Thor. Hann hafi aldrei heyrt af slíku áður. Ragnhildur sagði að Björgólfur Thor hefði ekki verið yfirheyrður hjá sérstökum saksóknara vegna málsins. Hann hafi aðeins einu sinni farið í skýrslutöku hjá embættinu, þá sem vitni vegna rannsóknar á málefnum Landsbankans. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Alvotech Viðskipti innlent „Svolítið blind á það hversu mikið forréttindafólk við erum“ Atvinnulíf Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Viðskipti erlent Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Viðskipti innlent Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Viðskipti innlent Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Viðskipti innlent Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Viðskipti innlent Kemur frá Icelandair til Varðar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Sjá meira