Sunnuhlíð glímir enn við uppsafnaðan rekstrarvanda Magnús Halldórsson skrifar 22. nóvember 2012 12:05
Þrátt fyrir að hjúkrunar- og elliheimlið Sunnuhlíð í Kópavogi hafi á dögunum fengið samþykkt afsal á lóðum á Kópavogstúni, sem tryggir uppgjör á skuldum heimilisins við Landsbankann, þá er enn fyrir hendi uppsafnaður rekstrarvandi sem á eftir að leysa. Sjálfseignarstofnunin Sunnuhlíð í Kópavogi, þar sem rekið er hjúkrunarheimili fyrir aldraða, hefur glímt við fjárhagsvanda allt frá efnahagshruni, en á dögunum var mikilvægt skref stigið við að ná betri tökum á fjárhagnum, þegar bæjarráð Kópavogs samþykkti beiðni frá Sunnuhlíð um framsal á fjórum lóðum á Kópavogstúni, sem Sunnuhlíð ætlaði að byggja á. Tekin höfðu verið lán hjá Landsbankanum vegna þessara uppbyggingaráforma og skuldaði heimilið bankanum ríflega 600 milljónir vegna þessa. Með framsalinu á lóðunum, til verktakafyrirtækisins Jáverks, sem hyggst byggja upp á lóðunum sambærilega starfsemi og Sunnuhlíð hygðist reisa, þá hefur Sunnuhlíð verið leyst undan þessum skuldum. Samkvæmt heimildum Fréttastofu er vandi Sunnuhlíðar þó ekki leystur að fullu enn, þar sem uppsafnaður rekstrarvandi á hjúkrunarheimilinu er enn fyrir hendi, og þörf á úrbótum. Íbúarnir á heimilinu, sem eru á annað hundrað í 108 íbúðum, eiga þó ekki hættu á að tapa fjármunum sem þeir hafa lagt í íbúarétt á heimilinu, líkt og getur í versta falli gerst á hjúkrunarheimlinu Eir. Íbúðirnar á Sunnuhlíð eru óveðsettar og geta komið á móti skuldum við íbúa.
Mest lesið Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Alvotech Viðskipti innlent „Svolítið blind á það hversu mikið forréttindafólk við erum“ Atvinnulíf Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Viðskipti innlent Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Viðskipti innlent Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Viðskipti innlent Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Viðskipti innlent Kemur frá Icelandair til Varðar Viðskipti innlent Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Fleiri fréttir Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Sjá meira