Steinunn Jónsdóttir stór hluthafi í Eimskipafélaginu Magnús Halldórsson skrifar 20. nóvember 2012 19:59 Steinunn Jónsdóttir, fjárfestir.
Steinunn Jónsdóttir fjárfestir, sem er dóttir Jóns Helga Guðmundssonar sem gjarnan er kenndur við Byko, er sá einstaklingur sem á stærstan einstakan eignarhlut í Eimskipafélaginu, ef frá er talinn bandaríski auðjöfurinn Ronald Burkle. Steinunn á í gegnum félag sitt Arkur ehf. 1,2 prósent hlut, sem er miðað við gengi dagsins í dag, sem er 220,5, virði ríflega 530 milljóna króna. Steinunn hefur verið nokkuð umsvifamikil í fjárfestingum eftir hrunið fyrir rúmum fjórum árum og á meðal annars 2,7 prósent hlut í MP banka í gegnum Arkur en hún lagði fram um 150 milljónir króna í hlutafé fyrir þann hlut. Þá er Steinunn einnig meðal stórra hluthafa í tryggingafélaginu Sjóvá. Félag Steinunnar er fjórtándi stærsti hluthafi Eimskipafélagsins en fyrsti listinn yfir 20 stærstu hluthafa félagsins, eftir að bréf félagsins voru formlega tekin til viðskipta á markaði síðastliðinn föstudag, var birtur í dag. Samkvæmt honum eru tvö félög sem heyra undir félagið Yucaipa, þar sem Ronald Burkle er stærsti hluthafi, með um 25 prósent eignarhlut í Eimskipafélaginu, sem er ríflega ellefu milljarða króna virði miðað við fyrrnefnt gengi bréfa. Lífeyrissjóður verzlunarmanna á 14,57 prósent hlut, og þrotabú gamla Landsbankans á 10,4 prósent hlut í félaginu. Á lista yfir stærstu hluthafa Eimskipafélagsins eru mest fagfjárfestar, svo sem bankar, lífeyrissjóðir og fjárfestingasjóðir. Sjá má frétt, sem birtist fyrr í dag á Vísi, um 20 stærstu hluthafa, hér.
Mest lesið Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Viðskipti innlent Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Alvotech Viðskipti innlent „Svolítið blind á það hversu mikið forréttindafólk við erum“ Atvinnulíf Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Viðskipti erlent Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Viðskipti innlent Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Viðskipti innlent Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Viðskipti innlent Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Sjá meira