Ferðaþjónustan skilaði nær 48 milljörðum í sumar 1. desember 2012 11:39
Afgangur á þjónustujöfnuði vegna ferðalaga og af samgöngum nam tæplega 48 milljörðum króna í sumar. Þetta er 8,6 milljörðum króna meiri afgangur en í fyrra. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að á þriðja ársfjórðungi í ár skiluðu þjónustuviðskipti við útlönd meiri afgangi en þau hafa nokkru sinni áður gert á einum ársfjórðungi. Hljóðar afgangurinn upp á 34,8 milljarða kr. samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar, sem er yfir fimmtungi meiri afgangur en í fyrra. „Tölur Hagstofunnar benda til þess að ferðamannasumarið 2012 hafi verið það gjöfulasta frá upphafi. Það ætti ekki að koma spánskt fyrir sjónir enda hafa aldrei verið jafn margir erlendir ferðamenn hér á landi og nú í ár," segir í Morgunkorninu. „Sé tekið mið af tölum Ferðamálastofu Íslands þá fóru rúmlega 292 þúsund erlendir gestir frá landinu um Leifsstöð á þriðja ársfjórðungi, sem er aukning upp á rúm 16% frá sama tímabili í fyrra." Síðan segir að á þriðja ársfjórðungi var afgangur af þjónustujöfnuði vegna ferðalaga 20,1 milljarður kr. og af samgöngum 27,6 milljarðar kr. Samanlagt er hér um að ræða afgang upp á 47,7 milljörðum kr. á fjórðungnum, en á sama tímabili í fyrra var hann 39,1 milljarði kr. Þýðir þetta m.ö.o. að ferðamennska og aðrir flutningar hafi skilað 8,6 milljörðum kr. meira af gjaldeyrisinnflæði en á sama tímabili í fyrra, að því er segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Alvotech Viðskipti innlent „Svolítið blind á það hversu mikið forréttindafólk við erum“ Atvinnulíf Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Viðskipti innlent Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Viðskipti innlent Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Viðskipti innlent Kemur frá Icelandair til Varðar Viðskipti innlent Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Sjá meira