Þriðja félagið á markað í Kauphöllinni Jón Hákon Halldórsson skrifar 18. desember 2012 12:02 Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, og Ómar Svavarsson, forstjóri Fjarskipta, við opnun markaðar í morgun. Mynd/ GVA.
Viðskipti hófust með bréf í Fjarskiptum, sem rekur Vodafone á Íslandi, í Kauphöllinni í morgun. Um er að ræða þriðju nýskráninguna á þessu ári en fasteignafélagið Reginn var skráð á markað í byrjun júlí síðastliðnum og Eimskip var skráð í Kauphöllina um miðjan nóvember. Samtals eru nýskráningarnar nú orðnar fjórar frá hruni en í desember á síðasta ári riðu Hagar á vaðið. Greining Íslandsbanka segir að endurreisn íslenska hlutabréfamarkaðarins sé nú komin vel af stað. Fjöldi fyrirtækja sé að huga að skráningu á næstu misserum og því mun framboð á hlutabréfamarkaði enn fara batnandi. Um klukkan ellefu í morgun var gengi Vodafone 32,2 krónur á hlut og veltan með bréf félagsins nam um 81,5 milljónum króna. Það er 2,2% yfir útboðsgengi félagsins sem var 31,5 krónur á hlut í bæði lokaða og opna hluta útboðsins sem fór fram í aðdraganda skráningarinnar. Alls seldi Framtakssjóður Íslands 60% af hlutafé félagsins í tvöföldu útboði. Í lokaða hlutanum voru seldir 49% hlutafjár og í opna hlutanum 11%. Söluandvirði hlutanna var 6,3 milljarðar króna. Framtakssjóðurinn á eftir þessi viðskipti tæp 20% í félaginu. Lífeyrissjóður Verslunarmanna á 12,3% hlut og aðrir hluthafar eiga innan við 5% í félaginu. Eins og fram hefur komið hér á Vísi er Heiðar Már Guðjónsson stærsti einstaki eigandi félagsins í gegnum fjárfestingafélag sitt Ursus ehf.
Mest lesið „Svolítið blind á það hversu mikið forréttindafólk við erum“ Atvinnulíf Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Viðskipti innlent Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Viðskipti innlent Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Viðskipti innlent Frábært ár að baki hjá Bylgjunni Samstarf Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Viðskipti innlent Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Viðskipti innlent Kemur frá Icelandair til Varðar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Sjá meira