Veiði sumarsins á hátíðarborðið Kristján Hjálmarsson skrifar 17. desember 2012 15:46 Jólaréttaráð Flugufrétta má finna á vefnum flugur.is
Í nýjustu útgáfu Flugufrétta á flugur.is má finna fjölda uppskrifta sem hjálpar fólki við að koma veiði sumarsins úr frystikistunni og á hátíðarborðið. Meðal þeirra sem gefa uppskriftir eru Siggi Hall, Gunnar Sverrisson og Halla Bára Gestsdóttir og Nanna Rögnvaldardóttir. Blaðið má finna hér en meðfylgjandi er uppskrift frá Ragnari Frey Ingvarssyni, sem heldur úti matarbloggi, meðal annars á Eyjunni.is.Ferskt og reykt laxacarpaccio með bláberjum og chilli 350 grömm af ferskum laxi skorinn niður í næfurþunnar sneiðar og lagður á flatan disk sem hefur verið pennslaður með jómfrúarolíu og smávegis af Maldon salti dreift yfir. Safi úr einni sítrónu og einu limei hrært saman og laxinn er penslaður með safanum (sýran eldar í raun fiskinn og maður sér hvernig hann breytir um lit eftir nokkrar mínútur. Í þessari uppskrift var reyktur lax einnig skorinn í þunnar sneiðar og lagður með ferska fiskinum. Fínt saxaðri steinselju er sáldrað yfir og svo smátt söxuðum chilli. Bláberjum því næst dreift yfir. Borið fram með crema de balsamico og heimagerður baguettebrauði.
Stangveiði Mest lesið Ólíku saman að jafna í Dölunum Veiði "Umræðan er byggð á algjörum misskilningi" Veiði Veiðin í Stóru Laxá að fara í gang Veiði 15 punda urriði við opnun Veiðivatna Veiði Veiðivötn yfir 20.000 fiska múrinn Veiði Veiðin með Gunnari Bender - 8. þáttur Veiði Dularfullu flugur sumarsins 2011? Veiði Meira af tölfræði í Eystri Rangá 2020 Veiði Leirvogsá er komin í gang Veiði Fyrstu veiðitölur frá Landssambandi Veiðifélaga Veiði