Feðgarnir í forlaginu menn ársins að mati Frjálsrar verslunar 28. desember 2012 12:02 Frjáls verslun.
Feðgarnir í Forlaginu, Jóhann Páll Valdimarsson og Egill Örn Jóhannsson, eru menn ársins í atvinnulífinu á Íslandi árið 2012, að mati Frjálsrar verslunar. Þeir eru útgefendur í annan og þriðja ættlið og þekkja útgáfusögu Íslands betur en flestir aðrir. Þeir feðgar hljóta þennan heiður fyrir arðbæra bókaútgáfu til góðs fyrir íslenskt samfélag og menningu, fagmennsku, stórhug og útsjónarsemi sem gert hefur Forlagið að einu athyglisverðasta fyrirtæki á Íslandi. Forlagið hefur frá upphafi, eða allt frá því það var stofnað árið 2001, verið rekið með hagnaði. Síðustu árin hefur félagið státað af 10 til 15% hagnaði eftir skatta af veltu. Það velti tæpum 1,3 milljörðum króna á síðasta ári og hagnaðist um 104 milljónir eftir skatta. Eigið féð var tæplega 1,1 milljarður króna og hefur byggst upp jafnt og þétt. Heildareignir Forlagsins voru um 1,7 milljarðar króna um síðustu áramót og langtímaskuldir litlar. Forlagið gefur út bækur undir merkjum JPV, Máls og menningar, Vöku-Helgafells og Iðunnar og rekur þess utan metnaðarfulla kortaútgáfu. Þá er Heimskringla háskólaútgáfa einnig innan vébanda félagsins. Jóhann Páll Valdimarsson og fjölskylda eiga 50% í Forlaginu á móti Máli og menningu Bókmenntafélagi sem er sjálfseignarstofnun. Verðlaunin verða afhent formlega í dag, 28. desember, kl. 16:00 á Hótel Sögu, í veislu sem Frjáls verslun heldur þeim feðgum til heiðurs.
Mest lesið „Svolítið blind á það hversu mikið forréttindafólk við erum“ Atvinnulíf Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Viðskipti innlent Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Viðskipti innlent Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Viðskipti innlent Frábært ár að baki hjá Bylgjunni Samstarf Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Viðskipti innlent Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Viðskipti innlent Fríverslunarsamningur nauðsynlegur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Sjá meira