Saksóknari verst frétta af tilkynningum RNA Magnús Halldórsson skrifar 20. desember 2012 12:00 Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari.
Mörg þeirra mála sem rannsóknarnefnd Alþingis tilkynnti til embættis sérstaks saksóknara þegar hún skilaði skýrslu sinni á vormánuðum 2010, eru enn til rannsóknar hjá embættinu. Ólafur Þór Hauksson saksóknari verst frétta af gangi rannsóknanna, en segir mörg mál vera langt komin í rannsókn. Á grundvelli laga sem rannsóknarnefnd Alþingis um bankahrunið starfaði eftir, var henni gert að tilkynna um mál, þar sem grunur var um refsiverða háttsemi, til embættis sérstaks saksóknara. Í sjöunda bindi skýrslunnar eru málin listuð upp, undir átta efnisþáttum. Það eru grunsemdir um refsiverða háttsemi stjórnarmanna bankanna, forstjóra, endurskoðenda og forsvarsmanna rekstrarfélaga verðbréfasjóða. Þá voru einnig tilkynnt mál sem tengdust hvatakerfum bankanna, gjaldeyrisviðskiptum þeirra við einstaka viðskiptavini, ekki síst hluthafa bankanna, og kaupum á eigin hlutabréfum, sem samkvæmt skýrslu rannsóknarnefdar Alþingis voru ekki síst til þess fallin að halda uppi fölsku verði á hlutabréfum. Sérstaklega er tilgreint í tilkynningu RNA að allir bankarnir þrír, Glitnir Landsbankinn og Kaupþing, hafi fjármagnað eigin hlutabréf langt umfram 10 prósent hámarkið í hlutafélagalögum. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, vildi ekki tjá sig um rannsókn þessara mála, þegar fréttastofa spurði um afdrif þessara mála. Hann sagði embættið ekki geta tjáð sig um einstök mál sem væru á rannsóknarstigi. Hann sagði þó að unnið væri hörðum höndum að rannsóknum fjölmargra mála, sem með einum eða öðrum hætti tengjast falli bankanna.
Mest lesið „Svolítið blind á það hversu mikið forréttindafólk við erum“ Atvinnulíf Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Viðskipti innlent Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Viðskipti innlent Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Viðskipti innlent Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Frábært ár að baki hjá Bylgjunni Samstarf Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Viðskipti innlent Fríverslunarsamningur nauðsynlegur Viðskipti innlent Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Sjá meira