Menning

Segir RIFF hafa öðlast nýtt líf

Bo Green Jensen hrósar Ólafi Darra fyrir hlutverk sitt í Djúpinu.
Bo Green Jensen hrósar Ólafi Darra fyrir hlutverk sitt í Djúpinu. fréttablaðið/valli
Danski blaðamaðurinn og kvikmyndasérfræðingurinn Bo Green Jensen segir hrokafulla bjartsýni hafa einkennt fyrstu RIFF-hátíðina sem fram fór árið 2004. Í grein í Weekendavisen segir hann hins vegar að hátíðin hafi öðlast nýtt líf í kjölfar kreppunnar og sé í raun tákn þess hversu Ísland hefur rétt úr kútnum eftir hrun.

Jenson var í hópi blaðamanna sem sóttu fyrstu RIFF-hátíðina árið 2004. Hann rekur breytingar til batnaðar eftir reynslu sína af hátíðinni í ár og segir meðal annars að hátíðin hafi nú skarpari fókus og einbeiti sér að fyrstu og öðrum myndum leikstjóra. Kreppan hafi verið eins konar lán í óláni því þjóðin hafi horfið aftur til fyrri gilda í kjölfar hennar.

Jensen fjallar að auki um nýjustu kvikmynd Baltasars Kormáks, Djúpið, og segir Ólaf Darra Ólafsson hafa sýnt stórleik í myndinni.

Þá segir Jensen að þær kvikmyndir sem hafi heillað hann hvað mest í ár hafi verið verið Starlet, Reformation og rúmenska kvikmyndin Everybody in Our Family. Þeirri síðastnefndu lýsir Jenson sem dramatískri kvikmynd þar sem gálgahúmor sé allsráðandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.