Hækka gjaldskrána vegna framkvæmda Kolbeinn skrifar 1. desember 2012 08:00
Aðstoðarforstjóri Landsnets segir að fyrirhuguð hækkun á flutningsgjaldskrá félagsins, sem tekur gildi um áramótin, sé í fullu samræmi við lög. Hún miðist við að arðsemi félagsins verði innan leyfðra marka og leiði til þess að fyrirtækið geti rækt hlutverk sitt, í samræmi við þarfir samfélagsins. Ákvörðunin verði fyrst kærð að lokinni umfjöllun Orkustofnunar sem hefur málið til umfjöllunar. Samál, Samtök álframleiðenda, hafa kært hækkunina til úrskurðarnefndar um raforkumál. Þorsteinn Víglundsson framkvæmdastjóri sagði hana vera brot á því ákvæði raforkulaga að tekjur verði að vera í samræmi við þann kostnað sem felst í þjónustunni, að teknu tilliti til arðsemi. „Samkvæmt breytingunum á gjaldskránni er hækkunin til dreifiveitnanna níu prósent en þegar tekið hefur verið tillit til hlutfalls flutnings í rafmagnsverði til almennings leiðir þetta til um eins prósents hækkunar á rafmagnsverði til neytenda. Gjaldskrá Landsnets til dreifiveitna hefur verið óbreytt frá 2009 og þrátt fyrir umrædda hækkun gjaldskrárinnar er hún sjö prósentum undir hækkun almennrar verðlagsþróunar frá þeim tíma," segir Guðmundur. Hvað stórnotendur varðar segir hann að gjaldskrá til þeirra hafi verið lækkuð í tvígang; 1. janúar 2010 um 7 prósent og 1. júní 2011 um 5 prósent. Það hafi verið gert vegna áhrifa frá gengishruni krónunnar. Þær lækkanir hafi verið afar óheppilegar og ekki endurspeglað stöðu fyrirtækisins á þeim tíma. Meðalflutningskostnaður stórnotenda sem var 5,4 USD/MWh í febrúar 2008 verður 5,7 USD/MWh frá 1. janúar 2013 gangi gjaldskrárhækkunin eftir. „Lagt er til að flutningsgjaldskrá til stórnotenda hækki um 20 prósent frá gjaldskránni eins og hún var eftir framangreindar lækkanir. Hækkun á gjaldskránni í Bandaríkjadölum frá 2008 er því tæpt prósentustig sem er um 4 prósentustigum undir þróun verðlags í Bandaríkjunum á sama tíma."
Mest lesið „Svolítið blind á það hversu mikið forréttindafólk við erum“ Atvinnulíf Uppsagnir hjá Alvotech Viðskipti innlent Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Viðskipti innlent Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Viðskipti innlent Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Viðskipti innlent Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Viðskipti innlent Kemur frá Icelandair til Varðar Viðskipti innlent Frábært ár að baki hjá Bylgjunni Samstarf Fleiri fréttir Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Sjá meira