Sinnulausi neytandinn Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar 11. desember 2012 06:00 Um helgina heyrði ég fregnir af því að einhver fyrirtæki úti í heimi hefðu verið dæmd fyrir eitthvað samráð. Gott ef ekki var um framleiðendur sjónvarpstækja að ræða. Ekki man ég fyrir mitt litla líf hvaða framleiðendur það voru og ég efast um að þegar þörfin á nýju sjónvarpstæki – sem er reyndar ekki ofarlega á forgangslistanum – bankar upp á, muni ég hafa fyrir því að fletta því upp. Það eru því töluverðar líkur á því að þegar fjárfest verður í sjónvarpi, sem vonandi er langt þangað til, muni ég verðlauna svikahrappana með viðskiptum mínum. Ekki er ég í viðskiptum við Símann, en þó svo væri efast ég um að enn ein fréttin af því að fyrirtækið hefði verið dæmt í sektir fyrir að misnota sér stöðu sína á einhvern hátti mundi hreyfa nóg við mér til að ég nennti að kynna mér hvaða aðrir kostir eru í boði. Ég mundi því án efa styðja fyrirtækið áfram, þrátt fyrir brot þess sem virðast nokkuð algeng. Og hvaða húsgagna- og innbúsfyrirtæki var það sem nýttist við vörur framleiddar með barnaþrælkun? Man það ekki, en eitthvað var það. Kannski þau öll. Án efa styð ég alls kyns fólk á hverjum einasta degi sem fer á svig við siðferði. Þá er átt við almennt siðferði, ekki nýsmíðina viðskiptasiðferði, en sérstakt siðferði virðist gilda um viðskipti. Skyldi kannski engan undra að markaðurinn þurfi sínar eigin siðferðisreglur. Sú trú að hann samanstandi af góðu fólki sem, í góðu og gagnkvæmu virðingarsambandi við starfsfólk sitt, framleiðir eftirsóttar vörur í sátt við guð og menn bíður sí og æ hnekki. Fólk sem þar um vélar virðist hafa það að leiðarljósi að græða sem mesta peninga, þó vissulega sé það á engan hátt algilt. Þar gæti ég, og þú lesandi góður, hins vegar komið inn í. Við erum neytendur og án viðskipta okkar þurfa fyrirtæki að fara að hugsa sinn gang upp á nýtt. Við ráðum, sérstaklega ef við berum gæfu til að virkja samtakamátt okkar. En þá þarf ég að muna lengur en hálftíma hvaða fyrirtæki braut hvaða reglur eða svínaði á hvaða fólki við framleiðslu sína. Ég þarf að sýna ábyrgð sem neytandi, ég þarf að hafa efni á því að kaupa aðrar vörur en þær allra ódýrustu og ég þarf að hafa nennu til þess að kynna mér málið. Að öðrum kosti breytist ekkert. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Kolbeinn Óttarsson Proppé Mest lesið Opið bréf til Einars Þorsteinssonar og Hildar Björnsdóttur - Hafið þið enga sómakennd? Linda Ósk Sigurðardóttir Skoðun Hafnaðir þú Margrét Sanders? Páll Erlingsson,María Petrína Berg,Fjóla Ævarsdóttir,Sigrún Gróa Magnúsdóttir Skoðun Hugleiðing á konudag Sigurður Ingi Arnars Unuson Skoðun Stétt með stétt? Helgi Áss Grétarsson Skoðun Áfram kennarar! Kristbjörg Þórisdóttir,Bragi Reynir Sæmundsson Skoðun Viðbrögð barna við sorg Matthildur Bjarnadóttir Skoðun Áfastur plasttappi lýðræðisins? Ingunn Björnsdóttir Skoðun Landshornalýðurinn á Hálsunum Hákon Gunnarsson Skoðun Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir til formanns Sjálfstæðisflokksins -Kraftur nýrra tíma Svanur Guðmundsson Skoðun Áslaug Arna er leiðtoginn sem Sjálfstæðisflokkurinn þarf Hafrún Kristjánsdóttir Skoðun
Opið bréf til Einars Þorsteinssonar og Hildar Björnsdóttur - Hafið þið enga sómakennd? Linda Ósk Sigurðardóttir Skoðun
Hafnaðir þú Margrét Sanders? Páll Erlingsson,María Petrína Berg,Fjóla Ævarsdóttir,Sigrún Gróa Magnúsdóttir Skoðun
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir til formanns Sjálfstæðisflokksins -Kraftur nýrra tíma Svanur Guðmundsson Skoðun
Opið bréf til Einars Þorsteinssonar og Hildar Björnsdóttur - Hafið þið enga sómakennd? Linda Ósk Sigurðardóttir Skoðun
Hafnaðir þú Margrét Sanders? Páll Erlingsson,María Petrína Berg,Fjóla Ævarsdóttir,Sigrún Gróa Magnúsdóttir Skoðun
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir til formanns Sjálfstæðisflokksins -Kraftur nýrra tíma Svanur Guðmundsson Skoðun