Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar 22. október 2026 07:01 Umræðan um innflytjendamál verður að byggja á staðreyndum, en líka á ábyrgð. Við verðum að geta rætt áhættuna sem fylgir því að taka á móti innflytjendum og við verðum að geta viðurkennt þegar gögn sýna að núverandi stefna skilar ekki þeim árangri sem við viljum. Við verðum að horfast í augu við samfélagsbreytingar og virða mikilvægi þessa málaflokks. Ég hef undanfarna daga rætt um áhyggjur mínar af þróun innflytjendamála, meðal annars um fjölgun fólks frá Miðausturlöndum og Norður-Afríku. Viðbrögðin hafa verið sterk. Það er skiljanlegt. Þegar rætt er um uppruna, trú og samfélagsbreytingar liggja mörkin milli málefnalegrar gagnrýni og óréttlátrar alhæfingar nærri. Þess vegna skiptir máli að ég skýri hvað ég er að segja. Þá skiptir ekki síður máli að skýra hvað ég er ekki að segja. Ég er ekki að halda því fram að allir sem koma frá þessum heimshlutum fremji afbrot, séu atvinnulausir eða vilji ekki aðlagast. Meiningin er ekki að leggja trú einstaklings til grundvallar mati á honum. Orð mín sem féllu í þá átt hef ég leiðrétt. Og ég er ekki að segja að uppruni sé örlög. Slíkar fullyrðingar væru rangar og óréttlátar. En það er heldur ekki málefnalegt að láta eins og enginn munur sé á því hvernig ólíkir hópar standa sig í atvinnu, afbrotatölum og þátttöku í velferðarkerfinu. Það er ekki hollt að loka augunum fyrir því að þeir sem hingað flytja eru ekki einsleitur hópur. Þegar opinber gögn sýna mun verðum við að skoða hann. Ekki til að stimpla einstaklinga, heldur til að móta stefnu sem virkar. Það er heldur ekki sanngjarnt að ætlast til þess að fólk hafi ekki áhyggjur af breytingum sem það sér og upplifir. Ungar konur hafa lýst því að þær treysti sér ekki til að taka leigubíla. Fræðsluráð Reykjavíkurborgar hefur rætt hvort þörf sé á öryggisvörðum í skólum. Fjallað hefur verið um áreitni gagnvart fólki á fjölförnum stöðum og rafbyssur eru nú hluti af búnaði lögreglu. Þetta þarf allt að ræða og rannsaka. Hvað er að breytast, hversu víða og af hverju? Ef fólk óttast að innflytjendastefna eða framkvæmd hennar eigi þátt í einhverjum þessara vandamála, eigum við að skoða það af sömu nákvæmni og annað. Tölur sem krefjast umræðu Í nýlegri samantekt danskra stjórnvalda kemur fram að árið 2025 hafi afbrotavísitala karla með uppruna í MENAPT-löndum (Miðausturlönd, Norður-Afríka, Afganistan, Pakistan og Tyrkland) verið 214 hjá innflytjendum og 326 hjá afkomendum þeirra. Meðaltalið er almenna viðmiðið. Vísitala karla af dönskum uppruna var 86. Þetta er aldursleiðrétt vísitala fyrir brot gegn dönsku hegningarlögunum. Sú staðreynd að önnur kynslóð innflytjenda fremur frekar brot á hegningalögum en fyrsta vekur eðlilega spurningar. Hún bendir til þess að tíminn einn muni ekki laga allt. Þegar börn eru fædd í landinu, ganga í skólana þar og alast upp innan sama velferðarkerfis, en niðurstöðurnar eru samt verri á ákveðnum mælikvörðum, verður að spyrja hvort aðgerðirnar okkar séu að skila árangri og hvort áherslur séu réttar. Sama varúð gildir þegar litið er til efnahagslegra áhrifa. Samkvæmt danska fjármálaráðuneytinu var nettóframlag innflytjenda og afkomenda frá MENAPT-löndum til opinberra fjármála metið neikvætt um 24 milljarða danskra króna árið 2019. Hópar frá öðrum löndum skiluðu samanlagt jákvæðu framlagi um 8 milljarða. Þetta er mat á tilteknu ári og byggir á aðferðafræði ráðuneytisins; það er ekki ævilangt uppgjör hvers einstaklings og ekki tölfræði sem má flytja beint yfir á Ísland. En hún er ástæða til að spyrja hvaða leiðir inn í landið skili samfélaginu bestum árangri. Það skiptir máli hvernig fólk kemur Eitt áhugaverðasta atriðið í dönsku gögnunum er að niðurstöðurnar eru ekki þær sömu fyrir alla sem koma frá þessum sömu löndum. Í hópi innflytjenda frá MENAPT-löndum sem höfðu komið á atvinnuleyfi eftir árslok 2017 var atvinnuþátttaka karla 84% árið 2023, samanborið við 81% hjá körlum af dönskum uppruna. Afbrotavísitalan fyrir hópinn var 63 hjá körlum og 47 hjá konum; samanburðarvísitala fólks af dönskum uppruna var 91 fyrir karla og 95 fyrir konur. Hópurinn var sannarlega lítill, 3.329 manns, og hafði dvalið stutt í landinu. Þetta eru því ekki tölur sem segja fyrir um ævina eða alla sem gætu komið eftir öðrum leiðum. Þær sýna engu að síður að niðurstaðan er ólík eftir því hver kemur og á hvaða grundvelli. Gögn frá Danmörku benda til þess að upprunaland eitt og sér skýri ekki allt. Þeir hafa sýnt fram á að leiðin inn í landið, tengsl við atvinnu og þátttaka frá upphafi skipta miklu máli, jafnvel höfuðmáli. Í öðrum dönskum útreikningi var nettóframlag innflytjenda almennt jákvætt hjá þeim sem komu vegna vinnu eða náms, en neikvætt hjá hópum sem komu vegna fjölskyldusameiningar eða hælis. Þessar vísbendingar eru auðvitað gagnlegar fyrir stefnumótun. Ef atvinnuþátttaka og sjálfsbjörg eru markmiðin þarf að leggja meiri áherslu á þær leiðir sem líklegastar eru til að skila þeim. Á sama hátt getur þurft að draga úr straumi þeirra sem erfiðast eiga með að aðlagast menningu okkar og háttum. Þetta er í mínum huga ekki köld afstaða. Þetta er ábyrg afstaða. Að bjóða fólki hingað án þess að tryggja þeim raunhæfa möguleika á að tileinka sér tungumálið, stunda hér vinnu, koma sér upp heimili og taka þátt í samfélagi er ekki góðvild. Það getur orðið að langvarandi óvissu fyrir fólkið sjálft, auknu álagi á þjónustu og vantrausti í samfélaginu. Það sem verra er, slíkt getur valdið þjóðfélagslegum breytingum sem fáir kæra sig um. Við vitum ekki nóg um stöðuna hér Íslenska umræðan þarf sömu nákvæmni. Þann 1. nóvember 2025 höfðu 77 af 158 föngum í íslenskum fangelsum erlent ríkisfang, eða 48,7%. En sú tala sameinar gæsluvarðhald og afplánun. Hún segir ekki frá uppruna fólks, dvalartíma eða því hvort það býr á Íslandi. Hún tekur heldur ekki til íslenskra ríkisborgara sem flutt hafa hingað, eða barna þeirra. Þeir flokkast sem Íslendingar í þessum gögnum. Þar er því ástæða til að kalla eftir betri gögnum. Við sjáum líka að hlutfall erlendra ríkisborgara meðal þeirra sem fá fjárhagsaðstoð í Kópavogi hefur hækkað úr 33% árið 2021 í 71%. Fulltrúar sveitarfélagsins hafa tekið fram að engar vísbendingar séu um misnotkun kerfisins. Á Íslandi eru ekki birtar samantektir þar sem hægt er að skoða afbrot, atvinnu, framfærslu og dvalargrundvöll eftir uppruna og ríkisfangi. Þá er torvelt að vita hvort þróunin sé sú sama og í Danmörku, hvað skýri hana eða hvaða aðgerðir virki. Við höfum ekki efni á að láta ímyndunaraflið fylla í eyðurnar þar sem upplýsingar ættu að vera. Við megum ekki vera svo viðkvæm fyrir gagnrýni að við þorum ekki að rýna þessi mál og ræða. Ég tel að Hagstofan eigi, í samvinnu við lögreglu, Útlendingastofnun og sveitarfélög, að birta árlega samantekt um stöðu innflytjenda. Þar verði greint eftir upprunalandi, kyni og aldri, en líka eftir því hvort fólk komi vegna vinnu, náms, fjölskyldusameiningar eða alþjóðlegrar verndar. Greina þarf á milli fólks sem býr hér og þeirra sem koma hingað tímabundið. Sama gildir um fjárhagsaðstoð: við þurfum heildarmynd, ekki stakar tölur úr einum bæ. Slík skráning á að vera samantekin og verja persónuupplýsingar. Markmiðið er ekki að fylgjast með einstaklingum. Markmiðið er að geta metið opinbera stefnu og þjónustu á áreiðanlegum grunni. Aðlögun er sameiginleg ábyrgð Mótrökin sem koma oft fram eru þau að vandinn sé ekki fólksins sem hingað kemur heldur okkar sjálfra: við höfum ekki kennt tungumálið nógu vel, ekki veitt nægan stuðning og ekki búið til réttar aðstæður fyrir atvinnuþátttöku. Þetta eru gild sjónarmið. Ríkið og sveitarfélögin bera ábyrgð á að gera fólki kleift að taka þátt í samfélaginu. Rannsóknir á dönskum aðgerðum benda meðal annars til þess að minna fjárhagslegt öryggi geti haft kostnað í för með sér fyrir börn og fjölskyldur, en að tungumálakunnátta og búseta þar sem raunveruleg atvinnutækifæri eru til staðar geti bætt árangur. Þess vegna eiga félagsleg úrræði að styðja fólk út í þátttöku, ekki festa það til langframa utan hennar. En ábyrgð samfélagsins þýðir ekki að fjöldi eða samsetning komufólks skipti engu máli. Skólar, húsnæði, heilsugæsla, tungumálakennsla og vinnumarkaður hafa takmarkaða getu. Að taka fleiri inn en við getum stutt vel er hvorki sanngjarnt gagnvart þeim sem koma né þeim sem fyrir eru. Og þegar önnur kynslóðin stendur verr en sú fyrsta samkvæmt mikilvægum mælikvörðum verðum við að endurmeta bæði framkvæmd aðlögunar og hraða aðflutnings. Við eigum að velja stefnu sem virkar Umræða mín snýst ekki um að setja trúarbrögð á sakamannabekk. Þótt Íslam sé ráðandi trú í MENAPT ríkjunum er þar samt um að ræða upprunaflokkun í tölfræði, ekki trúarflokk og ekki lýsing á einstaklingum. Fólk frá sömu löndum er ólíkt, eins og fólk af íslenskum uppruna er ólíkt. Stefna á að byggjast á lögum, hegðun, dvalargrundvelli og raunhæfum möguleikum á þátttöku, ekki á trú einni saman. En við megum heldur ekki láta óttann við að vera útmáluð sem rasistar stöðva alla umræðu. Þegar gögn sýna mun, ber okkur að spyrja hvað skýri hann og hvað sé hægt að gera. Þegar við vitum ekki nóg, ber okkur að afla upplýsinga. Þegar ákveðnar leiðir skila betri árangri, ber okkur að læra af þeim. Við eigum að taka vel á móti fólki. Við eigum að gera tungumálakennslu að raunverulegu forgangsverkefni, leggja áherslu á atvinnuþátttöku og skipuleggja þjónustuna af ábyrgð. En við eigum líka að setja skýrar væntingar, fylgja eftir reglum og halda flæði inn í landið innan marka sem samfélagið ræður við. Við eigum að gæta sérstakrar varúðar gagnvart þeim sem aðlagast illa. Góðvild án ábyrgðar er ekki stefna. Hún er von. Og opinbert vald má ekki byggja framtíð samfélagsins á von einni saman. Höfundur er bæjarstjóri í Ölfusi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Elliði Vignisson Mest lesið Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar