Skoðun

Þjáist þú af stað­reynda­greddu?

Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar

Það er merkilega þægilegt að hafa heiminn á hreinu. Að vita hvernig fólk er. Hvernig maður sjálfur er. Hvernig hlutirnir enda. Hvað er hægt og hvað er ekki hægt.

Og best af öllu: að hafa staðreyndirnar til að sanna það.

Fortíðin verður sönnunargagn, reynslan verður regla og allt sem gerist næst er flokkað eftir því sem maður veit nú þegar. Þannig getur maður orðið mjög fróður en um leið lokað sig inni.

Maður telur sig einfaldlega vera raunsæjan. En smám saman verður veruleikinn fyrirsjáanlegur, drungalegur og mögulega hættulegur.

Fólk breytist ekki.

Heimurinn er svona.

Ég er bara svona.

Þetta fer alltaf svona.

Manneskja með staðreyndirnar á hreinu þarf alls ekki að vera fáfróð. Hún getur verið gríðarlega upplýst, lesið rannsóknir, fylgst með heimsmálum, þekkt söguna og haft staðreyndir á reiðum höndum um nánast hvað sem er.

En magn upplýsinga segir ekkert um hversu opinn hugurinn er.

Þú getur vitað ótrúlega mikið um heiminn og samt aðeins leyft þér að sjá þann heim sem þekking þín hefur þegar staðfest. Þekking opnar ekki sjálfkrafa hugann. Hún getur líka lokað honum.

Því fleiri staðreyndir sem þú hefur til að verja þína heimsmynd, því sterkari geta veggir hennar orðið. Maður getur verið gríðarlega fróður um hið staðfesta og samt nánast ólæs á hið óstaðfesta.

Hið óstaðfesta

Andstæða staðreyndarinnar er ekki lygi eða húmbúkk.

Það er mikilvægt.

Við erum ekki að tala um staðreynd eða ósannindi. Við erum að tala um hið staðfesta og hið óstaðfesta.

Hið staðfesta er það sem hefur gerst, sést, mælst, verið upplifað eða sannað.

Hið óstaðfesta er það sem hefur ekki enn tekið á sig form staðreyndar. Það er ósýnilegt berum augum. Það svamlar um í vökulum huga og kallast möguleiki.

Staðreynd getur verið köld. Eins og klaki. Frosin í tíma.

Hún segir:

Þetta er það sem er. Þetta er það sem gerðist og verður. Þetta er það sem mældist.

Vandinn byrjar þegar við látum hana segja meira.

Blóðprufa. Myndataka. Greining. Skuld. Aldur. Sambandsslit. Mistök. Fortíð.

Það sem er satt í dag verður að sviðsmynd um morgundaginn. Svo harðnar þetta að sjálfsmynd með leiðigjörnum varnarviðbrögðum.

Ég er veikur. Ég er blankur. Ég er bara svona.

Þar harðnar staðreyndin. Hún hættir að vera upplýsingar og verður að endapunkti.

Og þar kemur staðreyndakoddinn til sögunnar.

Hann er mjúkur vegna þess að vissan er þægileg. Á honum þarf maður ekki að hætta á vonbrigði, endurskoða sjálfan sig eða stíga inn í eitthvað sem hefur ekki enn verið sannað.

En í koddanum eru naglar.

Hver ný staðreynd sem staðfestir heimsmyndina stingur aðeins dýpra og samt liggur maður kyrr. Maður leitar jafnvel að fleiri nöglum. Fleiri dæmum. Fleiri rannsóknum. Fleiri sögum. Fleiri sönnunargögnum fyrir því að heimurinn sé nákvæmlega eins og maður heldur.

Og nóg er til af þeim.

Þetta er hættan við staðreyndir. Ekki að þær séu rangar, heldur að við notum réttar staðreyndir til að byggja lokaða framtíð.

Staðreyndir eru vegvísir, ekki dauðadómur.

Þær geta sagt okkur hvar við stöndum í rauntíma, hvað hefur gerst og hvaða mynstur hafa endurtekið sig áður. En þær geta ekki staðfest það sem hefur ekki gerst enn.

Hver er staðreyndin þín?

Að þú sért alltaf blankur?

Að líkaminn þinn sé veikur ?

Að þú sért alltaf að ströggla í eilífu stressi?

Kannski hefurðu fullt af staðreyndum sem sanna það fyrir þér.

Hættan skapast þegar þú ferð ómeðvitað að leita að fleiri staðreyndum til að styðja það sem þú hefur þegar ákveðið að sé satt. Þá verður upplýsingaleitin ekki lengur leit að því sem er, heldur að sönnunargögnum fyrir kyrrstöðunni.

Þannig getur maður safnað staðreyndum utan um eigið hreyfingarleysi þar til þær mynda sannfærandi rök fyrir því að ekkert geti breyst nema staðreyndirnar sanni það fyrst.

Dauðadóm sem upp er kveðinn með vísan til sönnunargagna sem maður hefur sjálfur safnað.

Viltu lifa einungis með staðreyndum?

Höfundur er heildrænn ráðgjafi og mastersnemi í heildrænum læknavísindum.




Skoðun

Sjá meira


×