Menning

Ljómur í Garðakirkju

x
x
Tríóið Ljómur heldur jólatónleika í Garðakirkju næstkomandi sunnudag klukkan fimm. Á efnisskránni eru fjölbreytt klassísk jólalög, íslenskrar og erlendar Ave-Maríur og verk eftir Hreiðar Inga Þorsteinsson.

Tríóið Ljóm skipa þær Gerður Bolladóttir sópran, Victoria Tarevskaia selló og Sophie Schoonjans harpa. Gestasöngvari á tónleikunum er Hólmfríður Jóhannesdóttir mezzó sópran.

Aðgangseyrir á tónleikana er 2.000 krónur, 1500 fyrir eldri-borgara og frítt fyrir börn yngri en 16 ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.