Of mikil kraftur algengustu mistökin 17. janúar 2013 15:43 Í Langá á Mýrum. Allir veiðimenn gera sömu mistök, segir Hilmar Jónsson flugukastskennari. Þeir setja of mikinn kraft í köstin. Mynd/GVA
Þótt enn séu nokkrir mánuðir í að veiðisumarið hefjist er mikilvægt fyrir fluguveiðimenn að koma sér sem fyrst af stað, segir Hilmar Þ. Jónsson flugukastkennari. "Algengustu mistökin sem fólk gerir er að setja of mikinn kraft í að kasta flugunni út. Það á ekki bara við um byrjendur heldur alla, þar á meðal sjálfan mig," segir Hilmar. "Köstin snúast ekki um neitt annað en tækni og að stjórna hreyfingunum." Hilmar segir mikilvægt fyrir alla veiðimenn að koma sér sem fyrst af stað í fluguveiðinni, æfa köstin og ná úr sér ryðinu svo þeir komi vel undirbúnir fyrir sumarið. Hilmar er eini Íslendingurinn sem er með próf frá Federation of Fly Fishers. Hann er að fara stað með flugukastkennslu, í samstarfi við veiðiverslunina Vesturröst, en hann tekur aðeins fjóra nemendur á hvert námskeið svo hann geti sinnt hverjum og einum vel. "Ég met hvern og einn nemanda fyrir sig og laga það sem laga má. Ef köstin eru fín förum við í svokallað presentation, það er hvernig flugan leggst á vatnið o.s.frv. Það er alltaf hægt að læra eitthvað nýtt," segir Hilmar Þ. Ég eyði ábyggilega hátt í milljón á ári í að reyna að læra eitthvað nýtt og það er fyrir utan allan tímann sem ég eyði í köstin."
Stangveiði Mest lesið Veiði lokið í Eyjafjarðará Veiði 11 ára 20 punda sjóbirtingur Veiði Nýtt tölublað af Sportveiðiblaðinu komið út Veiði Ytri-Rangá yfir 3.000 laxa; tvær vaktir með 161 lax Veiði Laxveiðisumarið það fjórða besta Veiði Stórlax úr Víðidalnum Veiði Ertu eiginkona veiðimanns? Veiði Rétt og rangt við veitt og sleppt Veiði Frábær byrjun í Hlíðarvatni Veiði Fín veiði í Úlfljótsvatni Veiði