Íslandsbanki sagði innistæðu fyrir hækkunum en seldi sjálfur Magnús Halldórsson skrifar 17. janúar 2013 15:02
Sérfræðingar Íslandsbanka sögðu á lokuðum kynningafundi markaðssviðs bankans í síðustu viku, að innistæða væri fyrir hækkun hlutabréfa í íslensku kauphöllinni á næstu misserum, og þá m.a. Icelandair Group. Einnig voru nefnd félögin Hagar og Eimskipafélag Íslands. Bankinn seldi í gær bréf í Icelandair fyrir tæplega milljarð, en fjármálastjórinn, Jón Guðni Ómarsson, segir að ekki hafi verið um hagsmunaárekstra að ræða. Miklar hækkanir hafa einkennt gang mála á hlutabréfamarkaði hér á landi á nýju ári. Þetta á ekki síst við um gengi bréfa Icelandair Group, en frá áramótum hefur gengi bréfa félagsins hækkað um tæplega 15 prósent. Íslandsbanki hélt lokaðan fund í síðustu fyrir viðskiptavini markaðssviðs bankans, einkum stærri fjárfesta, lífeyrissjóði og félög þar á meðal. Á fundinum voru meðal annars kynnt þau sjónarmið að innistæða væri fyrir frekari hækkunum í kauphöllinni, þar á meðal á bréfum Icelandair. Í gær dró svo til tíðinda þegar Íslandsbanki seldi hluta af eign sinni í Icelandair fyrir tæplega einn milljarð króna, og á nú 7,4 prósent hlut í félaginu. Íslandsbanki var því að segja stórum viðskiptavinum sínum að það gæti verið innistæða fyrir hækkunum á gengi bréfa í Icelandair, á sama tíma og bankinn var í þann mund að fara selja bréf sín. Jón Guðni Ómarsson segir bankann ekki hafa verið að stuðla að hækkun á gengi bréfanna, áður en þau voru seld. „Íslandsbanki hefur ekki gert verðmöt á Ícelandair, og ekki verið með ráðgjöf um sölu eða kaup í félaginu, vegna þess að bankinn er sjálfur hluthafi. Á þessum fundi var hlutabréfamarkaðurinn almennt til umfjöllunar, og meðal annars komið inn á rekstur Icelandair. Það var tekið fram að bankinn væri hluthafi í Icelandair, og ætti því hagsmuna að gæta varðandi félagið, en það var ekki verið að veita ráðgjöf á grundvelli verðmats. Við höfum passað okkur vel á þessu, en í ljósi þess að við erum komin niður fyrir 10 prósent hlut, þá var vikið að rekstri Icelandair í yfirferð um hlutabréfamarkaðinn, en einungis á grundvelli upplýsinga sem eru aðgengilegar öllum," sagði Jón Guðni. Sjá má frekari umfjöllun um kynningu sérfræðinga Íslandsbanka, á fyrrnefndum fundi, hér, en greint var frá kynningunni í Fréttablaðinu og á Vísi í morgun.
Mest lesið Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Grettisgata drottnari heimagistingarinnar Viðskipti innlent Fjárfestar leigja Raufarhólshelli og rukka inn Viðskipti innlent Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Viðskipti innlent Loksins Bar og Mathús í Leifsstöð Viðskipti innlent Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Viðskipti innlent Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Viðskipti innlent Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Frábært ár að baki hjá Bylgjunni Samstarf Sigurjón áfrýjar dómnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Sjá meira