Atvinnuleysið 4,7% á fjórða ársfjórðungi í fyrra 30. janúar 2013 09:07
Á fjórða ársfjórðungi síðasta árs voru að meðaltali 8.400 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 4,7% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 5,4% hjá körlum og 4% hjá konum. Fjöldi starfandi á fjórða ársfjórðungi var 168.400 manns eða 75% af mannfjölda. Hlutfall starfandi karla var 77% og starfandi kvenna 73,1%. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að þegar á heildina er litið fækkaði atvinnulausum um 2.200 frá fjórða ársfjórðungi 2011. Atvinnulausum konum fækkaði um 1.200 og atvinnulausum körlum um 1.000. Starfandi fjölgaði á þessu tímabili um 3.000. Af þeim sem voru atvinnulausir á fjórða ársfjórðungi 2012 voru að jafnaði 3.400 manns búnir að vera atvinnulausir í 2 mánuði eða skemur eða 1,9% vinnuaflsins. Til samanburðar höfðu 2.900 manns verið atvinnulausir í 2 mánuði eða skemur á þriðja ársfjórðungi 2012 eða 1,7% vinnuaflsins. Þeir sem hafa verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur eru skilgreindir sem langtímaatvinnulausir. Á fjórða ársfjórðungi 2012 höfðu um 3.500 manns verið atvinnulausir svo lengi eða 1,4% alls vinnuaflsins. Þetta merkir að 29,3% allra atvinnulausra hafa verið atvinnulausir í ár eða meira. Á þriðja ársfjórðungi 2012 voru þeir sem höfðu verið atvinnulausir ár eða lengur um 3.300 manns sem er 1,8% vinnuaflsins eða 35,6% allra atvinnulausra. Á fjórða ársfjórðungi 2012 voru að jafnaði 176.800 manns á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði og fjölgaði um 0,5% frá sama tíma ári áður eða um 800 manns. Jafngildir þetta 78,8% atvinnuþátttöku. Fjöldi fólks utan vinnumarkaðar var 47.600, sem er fækkun um 1% frá fyrra ári eða um 500 manns. Atvinnuþátttaka karla var 81,4% og kvenna 76,1%. Á fjórða ársfjórðungi 2011 voru alls 176.000 á vinnumarkaði eða 78,5% atvinnuþátttaka og utan vinnumarkaðar voru þá 48.100. Atvinnuþátttaka karla var 82,7% og kvenna 74,3%. Á vinnumarkaði eða til vinnuaflsins teljast bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir.
Mest lesið Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Loksins Bar og Mathús í Leifsstöð Viðskipti innlent Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Viðskipti innlent Grettisgata drottnari heimagistingarinnar Viðskipti innlent Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Viðskipti innlent Fjárfestar leigja Raufarhólshelli og rukka inn Viðskipti innlent Sigurjón áfrýjar dómnum Viðskipti innlent Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Viðskipti innlent Hvernig erfist séreignin? Viðskipti innlent Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Sjá meira