Menning

Einn af þremur rekinn heim í kvöld

Í kvöld kemur í ljós hvaða tveir keppendur fara alla leið í úrslitaþátt MasterChef Ísland. Gunnar Helgi Guðjónsson, Jenný Rúnarsdóttir og Skarphéðinn Smith standa þrjú eftir og berjast um titilinn fyrsti Meistarakokkur Íslands. Keppendurnir hafa tekið þátt í fjölbreyttum þrautum, sýnt fram á yfirburði í eldamennsku, kænsku, þrautseigju og verið móttækileg fyrir ráðleggingum dómara en dómnefndin í Masterchef Íslands er mönnuð þeim Rikku, sjónvarpskokkinum góðkunna, Ólafi Erni Ólafssyni og Eyþóri Rúnarssyni. Í lok þáttarins verður einum keppanda gert að skila inn svuntunni sinni og þá verður ljóst hvaða tveir keppendur keppa um titilinn. Masterchef er á dagskrá Stöðvar 2 klukkan 20.10.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.