Kippur í skóverslun í janúar 14. febrúar 2013 18:21
Smásöluvísitala Rannsóknarseturs verslunarinnar var birt í dag. Fram kemur að velta jókst í dagvöruverslun um 1,2% á föstu verðlagi í janúar miðað við sama mánuð í fyrra og jókst um 6,2% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum jókst velta dagvöruverslana í janúar um 0,6% frá sama mánuði í fyrra. Verð á dagvöru hefur hækkað um 5,0% á síðastliðnum 12 mánuðum. Þá dróst áfengissala saman um 0,8% í janúar miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og jókst um 1,4% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum jókst velta áfengisverslunar í janúar um 0,4% frá sama mánuði í fyrra. Verð á áfengi var 2,2% hærra í janúar síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra. Fataverslun minnkaði um 1,3% í janúar miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi en jókst um 0,4% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum minnkaði velta fataverslunar í janúar um 3,9% frá sama mánuði í fyrra. Verð á fötum hækkaði um 1,8% frá sama mánuði fyrir ári. Velta skóverslunar jókst um 25% í janúar á föstu verðlagi og um 11,2% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð fyrir ári. Verð á skóm lækkaði um 11,0% frá janúar í fyrra. Aukning var á veltu húsgagnaverslana um 4,9% í janúar frá sama mánuði fyrir ári á föstu verðlagi og um 10,4% á breytilegu verðlagi. Verð á húsgögnum var 5,2% hærra í janúar síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra. Velta í sölu skrifstofuhúsgagna jókst um 11,1% í janúar síðastliðnum samanborið við sama mánuð ári fyrr á föstu verðlagi. Þá jókst velta sérverslana með rúm um 57,4% á föstu verðlagi. Í liðnum um verðlag og neyslu kemur fram að útsölur í janúar hafi gengið misvel. Þannig jókst velta í skóverslun um fjórðung að raunvirði miðað við janúar í fyrra, enda lækkaði verð á skóm um 11% á þessu tímabili. Velta í fataverslun dróst hins vegar saman um 1,3% að raunvirði frá janúar í fyrra. Fataverslun virðist eiga erfitt um vik og hefur ekki náð sér á strik allt frá hruni. Þá vekur athygli að velta hjá sérverslunum með rúm í janúar jókst um 57,4% að raunvirði á milli ára. Ætla má að meiri endurnýjunarþörf sé í rúmum en almennt í húsgagnaverslun, sem sýndi hægari vöxt í janúar. Velta í dagvöruverslun heldur áfram að þokast uppávið eins og allt síðasta ár. Sömuleiðis hefur vöxtur í veltu áfengisverslunar verið hægur en stöðugur síðustu mánuði. Að þessu sinni var ekki birt veltuvísitala raftækjaverslana eins og verið hefur. Ástæðan er vinna sem nú fer fram við endurnýjun vísitölunnar. Greiðslukortavelta heimilanna í desember var 8,6% meiri í janúar síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra. Athygli vekur að kortavelta útlendinga hér á landi í janúar jókst um 55,8% frá janúar fyrir ári. Þannig greiddu útlendingar um 4,7 milljarða króna í janúar hér á landi með greiðslukortum sínum, samkvæmt tölum Seðlabanka Íslands. Þessi upphæð samsvarar 8,4% af því sem heimili landsins greiddu með greiðslukortum sínum hér á landi í síðasta mánuði.
Mest lesið Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Viðskipti innlent Hvernig erfist séreignin? Viðskipti innlent Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Viðskipti innlent Kemur frá Icelandair til Varðar Viðskipti innlent Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Viðskipti innlent Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Viðskipti innlent Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Viðskipti innlent Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Sjá meira