Skallagrímsmenn enduðu sigurgöngu Keflavíkur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. febrúar 2013 21:06 Páll Axel Vilbergsson. Mynd/Vilhelm
Sjö leikja sigurganga Keflavíkur í Dominos-deild karla í körfubolta endaði í kvöld þegar Skallagrímur vann sjö stiga sigur á Keflvíkingum, 75-68. Það hefur lítið gengið hjá Skallagrími að undanförnu en Borgnesingar voru frábærir í Fjósinu í kvöld. Það munaði vissulega miklu um það að Magnús Þór Gunnarsson lék ekki með Keflavíkurliðinu í kvöld. Carlos Medlock skorðai 27 stig fyrir Skallagrím og Páll Axel Vilbergsson var með 19 stig. Michael Craion skoraði 25 stig fyrir Keflavík en Billy Baptist sem tapaði sínum fyrsta deildarleik á Íslandi var bara með 7 stig. Skallagrímsmenn unnu annan leikhlutann 22-13 og voru átta stigum yfir í hálfleik, 44-36. Borgnesingar náðu mestu fjórtán stiga forskoti í þriðja leikhlutanum, 62-48, en Keflavík minnkaði muninn í tíu stig fyrir lokaleikhlutann. Skallagrímsmenn héldu út í fjórða leikhlutanum og unnu gríðarlega mikilvægan en jafnframt óvæntan sigur á sjóðheitu Keflavíkurliði.Skallagrímur-Keflavík 75-68 (22-23, 22-13, 18-16, 13-16)Skallagrímur: Carlos Medlock 27/7 fráköst/6 stoðsendingar, Páll Axel Vilbergsson 19/9 fráköst, Hörður Helgi Hreiðarsson 8/4 fráköst/5 stoðsendingar, Sigmar Egilsson 7/7 fráköst, Davíð Ásgeirsson 6, Trausti Eiríksson 4/9 fráköst, Birgir Þór Sverrisson 2, Orri Jónsson 2.Keflavík: Michael Craion 25/13 fráköst, Darrel Keith Lewis 19/6 fráköst/5 stoðsendingar, Billy Baptist 7/8 fráköst/3 varin skot, Almar Stefán Guðbrandsson 5/5 fráköst, Hafliði Már Brynjarsson 4, Valur Orri Valsson 4, Snorri Hrafnkelsson 4.
Dominos-deild karla Mest lesið Orri Steinn einn verðmætasti ungi leikmaður heims Fótbolti Galdraskot Óðins vekur athygli Handbolti „Skil vel að KR-ingar séu með vatn í munninum yfir því sem koma skal“ Íslenski boltinn Hræðileg mistök hjá Elíasi í Evrópudeildinni í gærkvöldi Fótbolti Víkingar gætu komið íslensku liði í Evrópudeildina Íslenski boltinn Toppsætið endurheimt með átta marka stórsigri Fótbolti Hetja United meiddist ekki við það að fagna markinu Enski boltinn Stóð á boltanum áður en hún sólaði andstæðinginn upp úr skónum Fótbolti Spænska stjarnan flutt á sjúkrahús eftir slys á æfingu Fótbolti Freyr segir ummæli sín tekin úr samhengi Fótbolti Fleiri fréttir Körfuboltamennirnir sem Nablinn væri mest til í að taka tali Uppgjörið: Ísland - Slóvakía 70-78 | Svekkjandi tap gegn Slóvakíu Davíð Tómas dæmir landsleik í Helsinki í dag Þreytir frumraun þrítug: „Beðið eftir þessu í tvö ár“ „Verður sérstök stund fyrir hana“ „Þessi takki sem allir halda að Valur sé að fara kveikja á er ekki til“ Ekki spilað eina mínútu en dæmdur í bann Tommi með Nablann í bandi í Keflavík Klikkaði ekki á skoti í fyrsta leik og var stigahæstur „Þessi tími hefur liðið mjög hægt fyrir mér“ Pavel um varnarleik Keflavíkur: Á að særa stolt þitt Jordan-treyja seldist á 642 milljónir króna Fjórði stigahæsti kaninn en sá með lélegustu skotnýtinguna Tvær stórbrotnar körfur Ja Morant „Þurfum að passa upp á það að hafa gaman“ Vandræði utan vallar höfðu sitt að segja Popovich frá um óákveðinn tíma vegna veikinda Wendell Green rekinn frá Keflavík Sá langelsti stóð upp úr í Suðurlandsslag Erfitt hjá „sultunni“ Joel Embiid NBA-stjörnurnar þurftu að taka lestina á leikinn sinn Hannes í leyfi Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 92-87 | Stólarnir fyrstir til að vinna Stjörnuna Alba Berlin í vandræðum og stórleikur Martins dugði ekki til sigurs Mættur til tengdó og gírar sig upp fyrir Síkið Framlenging Körfuboltakvölds: Njarðvík getur orðið Íslandsmeistari eins og Valur Tvö lið enn ósigruð og Thunder að eiga bestu byrjun í sögu félagsins Réðst á blaðamann vegna ummæla um látinn bróður hans og nýfæddan son „Það þarf svo margt að ganga upp til að þeir vinni“ Minnkuðu muninn um tuttugu stig á þremur mínútum gegn gamla liði Elvars Sjá meira