Fiskiskipum fjölgaði um 35 í fyrra 25. febrúar 2013 09:07
Alls voru 1.690 fiskiskip á skrá hjá Siglingastofnun í lok árs 2012 og hafði þeim fjölgað um 35 frá árinu áður. Fjöldi vélskipa var 778 og samanlögð stærð þeirra 89.275 brúttótonn. Á vefsíðu Hagstofunnar segir að vélskipum fjölgaði um 14 á milli ára en stærð flotans jókst um 6.498 brúttótonn. Togarar voru alls 56 og fækkaði um tvo frá árinu á undan. Heildarstærð togaraflotans var 72.701 brúttótonn og hafði minnkað um 436 brúttótonn frá árinu 2011. Opnir fiskibátar voru 856 talsins og 4.110 brúttótonn að stærð. Opnum fiskibátum fjölgaði um 23 milli ára og heildarstærð þeirra jókst um 122 brúttótonn. Flest fiskiskip voru með skráða heimahöfn á Vestfjörðum í árslok 2012, eða 399 skip, sem er um 23,6% fiskiskipastólsins. Næst flest, alls 324, voru með heimahöfn skráða á Vesturlandi, eða rúm 19%. Fæst skip voru með skráða heimahöfn á Suðurlandi, 75 alls, en það samsvarar 4,4% af heildarfjölda fiskiskipa. Opnir bátar voru flestir á Vestfjörðum, eða 227, og á Vesturlandi voru þeir 180. Fæstir opnir bátar voru með heimahöfn á Suðurlandi, alls 17. Vélskip voru einnig flest á Vestfjörðum, 166 talsins, en fæst á Norðurlandi vestra, 56 skip. Flestir togarar voru með heimahöfn skráða á höfuðborgarsvæðinu, alls 12, en 11 togarar voru skráðir með heimahöfn á Norðurlandi eystra. Fæstir togarar voru skráðir á Vesturlandi, alls 4. Íslenski fiskiskipastóllinn var rúmlega 8 mánuðum eldri að meðaltali í árslok 2012 heldur en í árslok 2011, en meðalaldur var um 24 ár og fimm mánuðir. Meðalaldur vélskipa var tæp 23 ár, togaraflotans rúm 27 ár og opinna fiskibáta tæp 26 ár. Meðalsmíðaár fiskiskipaflotans var árið 1988 og þilfarsskipaflotans (vélskipa og togara) árið 1989.
Mest lesið Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Hvernig erfist séreignin? Viðskipti innlent Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Viðskipti innlent Kemur frá Icelandair til Varðar Viðskipti innlent Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Viðskipti innlent Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Viðskipti innlent Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Viðskipti innlent Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Viðskipti innlent Siggi til Varist Viðskipti innlent Fleiri fréttir Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Sjá meira