AGS: Skuldir heimila og fyrirtækja nær tífölduðust á fimm árum 22. febrúar 2013 06:42
Heildarskuldir íslenskra heimila og fyrirtækja fóru á fimm ára tímabili úr því að vera rúmlega landsframleiðsla landsins og yfir í að vera á við tæplega tífalda landsframleiðsluna. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Skýrslan sýnir mismuninn á stöðu skulda heimila og fyrirtækja í Evrópu árin 2005 og 2010 og þróunina þar á milli. Hvað skuldir íslenskra heimila og fyrirtækja varðar fóru þær úr um 120% af landsframleiðslunni og í 956% árið 2010. Í skýrslunni segir að fjármálafyrirtæki, þar með þrotabú bankanna, séu ekki tekin með í þessum tölum. Næst á eftir Íslandi á listanum er Írland en skuldir heimila og fyrirtækja þar eru um þrefalt minni en á Íslandi mælt sem hlutfall af landsframleiðslu. Bretland og Holland koma svo í næstu sætum en þar eru skuldirnar um tvöföld landsframleiðslan. Á Norðurlöndunum er hlutfallið á bilinu 120% til 150%. Athygli vekur að í Grikklandi, sem rambað hefur á barmi þjóðargjaldþrots vegna opinberra skulda, er hlutfall skulda heimila og fyrirtækja með lægsta móti í Evrópu. Í skýrslunni kemur fram að samanlagt námu þær innan við 50% af landsframleiðslu landsins árið 2010. ------------ Athugasemd frá Seðlabankanum kl. 11:50 þann 22.2.2013. Þorvarður Tjörvi Ólafsson, hagfræðingur hjá Seðlabankanum, segir að samanlagðar skuldir heimila og fyrirtækja hafi farið úr því að vera liðlega 280% af VLF árið 2005 í um 400% árið 2010 sem er rúmlega 40% aukning. Hæst hafi þessar skuldir farið í um 500% árið 2008 sem er um 130% aukning á fimm árum (frá árinu 2003). Þorvarður vísar í gögn sem má finna í fjármálastöðugleikaskýrslum máli sínu til stuðnings.
Mest lesið Hvetur eigendur Tesla til að fylgjast með bilunum Neytendur Hvernig erfist séreignin? Viðskipti innlent Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Viðskipti innlent Kemur frá Icelandair til Varðar Viðskipti innlent Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Viðskipti innlent Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Viðskipti innlent Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Viðskipti innlent Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Viðskipti innlent Siggi til Varist Viðskipti innlent Fleiri fréttir Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Hvernig erfist séreignin? Auglýsa eftir framboðum viku eftir síðasta stjórnarkjör Fasteignagjöld hækki í krónum þrátt fyrir lækkun fasteignaskatts Vínbúðinni í Smáralind lokað fyrir sumarið Halda til loðnuveiða í kvöld Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Telur óþarft að blanda pólitískum skoðunum í nýtt hlutverk Bjarni Ben nýr framkvæmdastjóri SA Pétur nýr forstöðumaður hjá LV Segja skilið við Kringluna Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Davíð ráðinn til að stýra Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Hrafnhildur til Pipar\TBWA Þau eru tilnefnd til UT-verðlauna Ský Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ármann Bein útsending: Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar kunngjörðar Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Sjá meira